Réttur


Réttur - 01.02.1927, Page 30

Réttur - 01.02.1927, Page 30
32 FRÁ ÓBYGÐÚM [Rjettur Fugleyrar. Fugleyrarnar eru grasi grónar. Norðlingafljót rennur norðan við hraunið. Hefir það í ruðningum borið aur og stórgrýti út á hraunið, og hefir því jarðvegur þróast þar, en annarstaðar er hraunið bert eða vaxið grámosa austur hér. Margir götutroðningar sjást á Fugleyrum og flestir gainlir. Af Efri-Fugleyrum er farið um hraunhaft upp í Vopnalág, grasi gróna kvos nyrst i hrauninu. Þaðan liggur vegurinn á Þorvaldsháls. Á Fugleyrum og Vopnalág er fagurt í góðu veðri, Strút- urinn í suðri, en í austri rís Eiríksjökull hátt yfir gráan hraunstrauminn. Eiríksjökull frá Surtshelli. Þorvaldsháls er breið og löng bunga, er liggur norðan við Hallmundarhraun, norður af opi því, sem verður inilli Strúts og Eiríksjökuls. Grágrýtisurð er allstaðar í yfir- borði. Liggur vegurinn eftir hálsinum endilöngum og er illa ruddur og því seinfarin. Við austurenda hálsins er farið yfir Norðlingafljót á stórgrýttu vaði. Hefir hraunflóðið

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.