Réttur - 01.02.1927, Page 69
Rjettur]
KOMMÚNISMINN OG BÆNDUR
71
Þá er og ýmislegt smærra og minna sígilt notað í sama
tilgangi svo sem gengismál og fl., og ritað um það ósköpin
öll með miklum æsingi og orðaflaumi. Við nánari athugun
liverfur þetta þó flest eins og hjóm fyrir vindi. Um pen-
ingagengið er til dæmis það að segja að harla ástæðulaust
er fyrir bændur og verkalýð að rífast um það mál, því að
báðum stjettunum eru gengissveiflurnar skaðlegar og fje-
flettar og arðnýttar eru þær í sameiningu hvernig sem
gengið er.
Það er nú sannarlega mál til komið fyrir vinnandi stjett-
irnar, að láta allar tilraunir til að siga þeim saman sem
vind um eyrun þjóta, en snúa sjer heldur í bróðerni að
sameiginlegum hagsmuna- og áhugamálum.
I öllum aðahnáhun eiga verkamenn og bændur samleið.
Hvorirtveggja hafa óhag af öflum óbeinum sköttum. Báð-
ar stjettir hafa óhag af skipulagsleysi atvinnulífsins. Báð-
um er ómetanlegt gagn að því, að losna við alla milliliði
í viðskiftum og að skipuleggja sjálfar verslunarmálin með
samtökum. Báðum er umfram alt hagur að því, að ræktun
landsins komist í sæmilegt horf, því með því móti einu er
hægt að stöðva fólksstrauminn til kaupstaðanna og bæta
úr atvinnuleysinu. Því byggilegri sem sveitirnar væru,
því meir myndu menn laðast að þeim og því betur mundi
alþýðunni líða í kaupstöðum. Því minni sem framleiðslu-
kostnaðurinn væri á Iandbúnaðarafurðum, því ódýrari
yrðu þær fyrir kaupstaðarbúa, ef ekki væri um okur að
ræða.
Með þróun stórútgerðarinnar og endalykt sjálfstæðis-
málanna, hefst nokkur stjettavakning með bændum, sem
verður til þess, að stofnaður er bændaflokkur, sem síðar
hlýtur nafnið Framsóknarflokkurinn. Hver er nú stefna
þessa flokks og hvernig hefir liann starfað? (Frh.).
Brynjólfur Bjarnason.