Réttur - 01.02.1927, Blaðsíða 73
Rjettui1] BARATTAN UM HEIMSiYFIRRAÐIN
75
á land. Föru ýms stórveldi önnur að dæmi þesss, en ekkert
þeirra vildi þó tefla svo á tvær hættur að hefja stríð við
Kína — nema England. Ekki sagði það þó Kínverjum stríð
á hendur, heldur skaut á her þeirra í viðlögum — og
heimtaði skaðabætur fyrir, ef enskir hermenn vóru drepn-
ir í þeirri viðureign. Reis deila mikil út af slíku framferði
í Nanking 23. mars. Voru þá nokkrir breskir hérmenn
drepnir, að því er Kínverjar sögðu, af hvítliðum rússnesk-
um á flótta, — en Bretar hófu skothríð á borgina og drápu
og særðu 7000 Kínverja, þar á meðal konur og börn.
Krafðist síðan breska stjórnin skaðabóta.
Brátt sáu Bretar þó að byitirigin varð eigi sigruð á
þennan hátt. Sneru þeir sjer því að ástandi byltingar-
flokksins sjálfs, til að hyggja hvort ekki væri liægt að
vinna þar betur á. Skal nú vikið aftur að því er fyr var frá
horfið.
Við sigur byltingarinnar hafði nú verklýðshreyfingin í
Kína eflst svo furðu sætti og um leið flokkur kommúnista.
Urðu þá háværari kröfur kínverskra verkamanna um end-
urbætur á kjörum sínum, sem er viðbrugðið fyrir hve lje-
leg þau eru. Fóru þá atvinnurekendur að yggja að sjer og
þótti ills viti, ef byltingin tæki þessa stefnu. Fór því að
dofna áhugi þeirra fyrir byltingunni að sama skapi og
verkalýðnum óx fiskur um hrygg. Sáu Bretar sjer nú brátt
leik á borði, að fá þessa menn borgarastjettarinnar í lið
íneð sjer og hjetu þeim ýmsum tilslökunum, ef vinstri
armur byltingarmanna yrði undir. Brátt kom að því, að
kínverskir stórborgarar snerust ákveðið gegn byltingunni,
er hún varð svo róttæk og foringi þeirra í deilu þeirri er
nú hófst innan Kuo-Min-Tang varð Tschang-Kai-Shek.
Eitt af ágreiningsefnunum varð nú, hvar höfuðborgin
skyldi vera. Vildu hægri menn hafa hana í Nantchang,
sem er sveitaborg, en vinstri menn.í Wuhan, en svo heitir
borgaþyrping sú, er Wuchang, Hankow og Hanyang
mynda við Blá-á. Urðu hinir síðarnefndu yfirsterkari og
í mars 1927 flutti öll stjórnin til Wuhan. Urðu áhrif iðn-