Réttur - 01.02.1927, Page 96
98 RITSJÁ [Rjettur
Love’s Pilgrimage by Upton Sin-
clair. (Ný útgáfa).
Það er frekar sjaldgæft að ástarsögur sjeu svo skrifaðar að
vit sje í. Hjer er ein, sem að dómi ágætra ritdómara skarar fram
úr flestu því, sem skrifað hefur verið um þetta efni, sem mest
er um ritað af öllum. Er hjer lýst af mikilli snild ástarlífi
manns og konu í hjónabandi, viðureign þeirra við öll þau vanda-
mál, sem valda hjónum mestra heilabrota, en fæstir þora að
minnast á af misskildri viðkvæmni; lýsingar skáldsins á ýmsum
atriðum, sem vandfarið er með, eru einlægar en þó hreinar og
margt í þeim sígilt. Og eins og við er að búast af þessum höf-
undi tekur hann ástalíf manna í sambandi við þjóðfjelagslífið
yfir höfuð.
»Smiður er jeg nefndur« eftir þennan höfund er nú komið út
á íslensku. Vafalaust mundi »Pílagrímsför ástarinnar« vekja
enn meiri athygli, ef þýdd væri, og væri bókmentum vorum að
því fengur góður.
Erlend tímarit.
»The Labour Monthly« heitir mánaðarrit eitt, gefið út í Lund-
únum. Er það eitthvert besta rit um verklýðsmál, sem út er gef-
ið. Skrifa í það margir ágætir menn og flytur ritið greinar um
erlend og innlend stjórnmál, atvinnumál o. fl., líka stundum um
bókmentir o. fl. Einkum eru ágætar frásagnir um þau mál, sem
mest eru á döfinni, sífelt fremst í því og er þar margt skarp-
lega athugað af ritstjóranum, er skrifar þessar greinar. Öllum
þeim, er vel vilja fylgjast með í verklýðsmálum og atvinnulífi
þess lands, er nú stendúr á mestum vegamótum flestra landa, —
er ráðið að lesa rit þetta. (Verð 8 sh. stærð 7—800 síður).
»Die Literarische Welt« heitir eitt helsta bókmentablað Þjóð-
verja. Kemur það út vikulega í Berlín (kostar 3,40 mörk árs-
fjórðungslega). Þetta rit flytur greinar um bókmentir, skáld,
kvikmyndir, leikhús og listir víðsvegar um heim, og rita í það
ýmsir kunnustu höfundar Þjóðverja. Islendingar þurfa sem mest
að forðast andlega einangrun og er þeim því nauðsynleg't að
hafa sem best sambönd við bókmentaheiminn í kringum sig.
Munu fá blöð gefa það betur en »Die Literarische Welt«, minsta-
kosti varla hvað Þýskaland snertir. (Heimilisfang: Potsdamer-
str. 123 B. Berlin). E. O.