Réttur


Réttur - 01.01.1952, Page 21

Réttur - 01.01.1952, Page 21
RÉTTUR 21 anna tóku bréfin og ritgerðirnar öll tvímæli af. 1922 segir hann í „Úrlausn. Drög til æfisögu": „Hitt hygg ég, að iðnbræðralag — „classpolitik", „bolshevisme" — verði næsta stig, helst um allan heim, og að það, með vaxandi skilningi, leiði til samvinnu frá samkepni manna milli, því sérhver „stétt" finnur sjálf best, hvar skór kreppir, og getur valið vegi til úrbóta, án þess réttur hluti hinna „stéttanna“ sé fyrir borð borinn, sé vilji og skynsemi látin ráða, en ekki atkvæðamagn, þó sumar ,ítéttir“ þurfi alvega að afnema, t. d. her- mannanna." Skáldið, sem orti „Vopnahlé“ og Vigslóða allan, áleit þörf upp- reisnar og byltingar alþýðunnar í öllum löndum gegn auðvaldi því, er olli stríðinu mikla 1914-18. Því segir hann í bréfi til Jóns frá Sleðbrjót 28. nóv. 1918: „En hitt er víst, rísi ekki almenningur upp í löndum sigurvegaranna og afstýri því, sem verða vill, endar þetta stríð, eins og önnur hafa gert, með tapi alþýðu á unnu frelsi sínu, í þeim ríkjum, sem ofan á urðu, en gróða fyrii sanna menningu og betra innbyrðis fyrirkomulag fyrir yfir- unnu þjóðirnar heldur en hitt, sem þær áttu áður við að búa, hversu svo sem yfirborðin kunna að láta líta út. Kló hins hroka-heimska hervalds kreppir sig um sína eigin þjóð, þó það dragi hrammana inn af útlendum vígvelli. Ég á von alþýðu afturfarar Bandamanna-megin eftir stríðið, nema hún hafi vit á að kippa völdum úr ræningja höndum, allra þeirra, sem að stríði þessu stóðu, vægðarlaust." Stephan G. sá rétt fyrir þessa hamslausu árás auðvaldsins á alþýðu Bandaríkjanna eftir stríð, sem birtist — þá eins og nú — jafnt í ofsóknum gegn verkalýðshreyfingunni, sem hann svaraði ógleymanlega í kvæðinu „Eugene Debs“, og í Rússaníði. Og hann tók af öll tvímæli um álit sitt á þeim aðförum auðvalds og afturhalds. í bréfi til Jóns frá Sleðbrjót 14. marz 1920 segir hann: „Og nú eru þau (þ.e. flokksblöðin) að byrja að ljúga sig með lagi út úr sinni eigin lygi um „bolshevismann" á Rússlandi, þegar engin brögð ætla að duga lengur til að skera hann niður, því hann sigrar heim allan á endanum, af því hann er sanngjarnastur, og eina hjálpin út úr þeim hreins- unareldi, sem mannheimur er staddur í, hann — eður mennirnir í dýpra víti, að eilífu, það er ég viss um. Deiluefnið er ekki lengur, hvort „soviet"- fyrirkomulagið eigi að komast á, heldur: verður það fáanlegt með góðu, eða aðeins með illu. Nú geng ég víst alveg fram af þér í „landráðunum," sem einu sinni þýddi svipað og „politík" nú, én ég var ögn búin að hugsa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.