Réttur


Réttur - 01.01.1952, Page 44

Réttur - 01.01.1952, Page 44
44 RETTUR höfuðborgarinnar, sem „háborg íslenzkrar menningar11 átti að rísa samkvæmt draumsjónum fyrstu áratuga fullveldisins, rís nú engil- saxneskt „bragga“-hverfi, ryðskúrar byggðir íslenzkum barna- fjölskyldum við hörmulegustu aðstæður, — en íslendingum neitað um frelsi til að útrýma þessum heilsuspillandi íbúðum, neitað um frelsi til þess að flytja inn byggingarefni, meðan allar búðir eru fylltar af erlendum óþarfa og iðjuvarningi, til að drepa niður íslenzkan iðnað. * Þannig er þjóð vor leikin sem nýlenduþjóð væri, af erlendum hrokagikkjum Mammonsríkisins, með tilstyrk innlendra valdhafa. Þióðinni er hrundið úr því atvinnu- og afkomuöi-yggi, sem hún hafði áunnið sér með baráttu sinni og pólitískri sókn undir forustu Sósíalistaflokksins 1942—47, niður í eymd og ánauð. Er nú komið sem áður var að íslendingar eru farnir að flýja land sakir atvinnu- leysis þess, sem leppstjórn Ameríkana skipuleggur. En amerískir menn eru fluttir inn að sama skapi m. a. til að stjórna íslenzkum íyrirtækjum. Það er hafin árás af ameríska auðmannavaldinu á ísland og ís- lendinga, til þess að leggja land og þjóð undir sig, gera íslendinga að ánauðugri nýlenduþjóð í eigin landi, er hlýði möglunarlaust voldugum, vopnuðum amerískum herrum og eftirláti þeim land og þjóð til hverra þeirra nytja eða eyðingar, sem herraveldið kýs. En þótt hættan sé meiri nú en nokkru sinni fyrr, þá er viðnáms- þróttur þjóðar vorrar, andlegur, efnahagslegur og pólitískur líka meiri nú en nokkru sinni áður í sögu vorri. Tunga vor, skírð í hreinsunareldi Jónasar Hallgrímssonar, •— eina tunga germanskra þjóða, sem slapp ómenguð út úr alda- langri menningaráþján herraveldis aðalsins, — leggur nú til úrslitaorustu um tilveru sína við drottnandi mál auðvaldsheimsins. En þeim sigrum forfeðra vorra í baráttunni um tunguna er það að þakka að jafnt íslendingasögurnar sem endurreisnarskáldskap- urinn verða vorri kynslóð vopn og dýrmætur arfur í átökunum við ameríska valdið. Listir íslands standa nú í fjölbreytilegustum blóma sínum, en þær hafa nokkru sinni náð. Skáldsagnagerð söguþjóðarinnar nær hátindi að nýju með Halldóri Kiljan Laxnes. Síðari tímar munu meta hann einn mesta skáldsagnahöfund allra tíma, hvernig sem andlegir dvergar samtímans vanmeta hann og ofsækja. Á ör- lagastund íslenzku þjóðarinnar gefur hann henni íslendingasögur að nýju, þar sem geymd eru í eigindum einstakra ógleymanlegra persóna og meitluðum ódauðlegum setningum sár reynsla og sönn hreysti íslenzkra kynslóða allra alda. Sagan af Sölku Völku, sagan
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.