Réttur


Réttur - 01.01.1952, Page 50

Réttur - 01.01.1952, Page 50
„Og munum vjer eigi það ófrelsi gera einum oss til handa, heldur bæði oss og sonum vorum og þeirra sonum, og allri ætt vorri, þeirri, er þetta land byggir; og mun ánauð sá' aldreigi ganga cða hverfa af þessu landi. En þótt konungur sá sé góður maður, sem ég trúi vel, að sé, þá mun það fara héðan frá sem hingað til, þá er konungaskipti verða, að þeir cru ójafnir, sumir góðir, en sumir illir. En ef landsmenn vilja halda frelsi sínu, því er haft hafa síðan er land þetta byggðist, þá mun sá til vera, að ljá konungi enskis fangstaðar á, hvorki um landaeign hér, né um það að gjalda héðan ákveðnar skuldir, þær er til lýðskyldu megi metast." ★ Úr jarðhúsinu í Reykholti kveður við raust Snorra Sturluson- ar, mannsins, sem gaf norrænum þjóðum hetjusögu kynstofns þeirra, og var veginn af íslenzkum þýjum erlends drottinsvalds Hún mælir til þeirra manna á íslandi, Noregi, Danmörku, sem leggja íslenzka þjóð fjötraða að fótum amerísks hervalds, — til þeirra, sem ala hér á ofstæki og ofsóknum að amerískum hætti gegn þeim andlega arftaka Snorra, sem nú ber hróður íslands hæst um heim, Halldóri Kiljan Laxnes. Hún mælir; Eigi skal höggva — með stolti og vissu þess manns, sem veit hann lifir alla morðingja sína. ★ Frá höggstokknum í Skálholti hrópar til vor blóð Jóns biskups Arasonar og sona hans. í þrjár aldir varð þjóð vorri að blæða — og hafði nær blætt út — fyrir ósigur þann, er hún þá beið í viður- eign við erlent vald, sem með forheimskun og þýlyndi blindaði íslenzkan huga og anda, rændi íslenzkum eignum, mútaði íslenzk- um höfðingjum og murkaði síðustu leifar íslenzks frelsis. ★ Úr þjóðfundarsalnum hljómar til vor rödd Jóns Sigurðssonar, svarið við útlendu ofbeldi, erlendri hersetu, tjáð af hiklausum huga, þegar afturhald Evrópu hafði bælt niður frelsisbyltingar fólksins: Ég mótmæli, — svarið, sem táknaði sigur íslenzks anda yfir erlendu ofbeldi og ofurefli, — svarið, sem lagði með snilld foringjans smiðshöggið á einingu íslendinga, birti alþjóð ávöxtinn af eldmóði Eggerts, atorku Skúla, baráttu Baldvins og ljóðum Jónasar. Og bak við hin djörfu orð foringjans rís himinhátt uppreisnarandi íslenzkrar alþýðu, íklæddur blóði og holdi Bólu- Hjálmars, í Þjóðfundarsöngnum 1851: Ef synir móður svikja þjáða, sverð vikinga mýkra er;
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.