Réttur - 01.01.1952, Síða 53
RÉTTUR
53
Malakkaskaga, þrátt fyrir hinn ójafna leik. Hvað er það, sem gerir
gæfumuninn? Það er mannvalið. Það er aflið sem úrslitum ræður í
styrjöldum enn í dag og í dag kannske frekar en nokkru sinni....
Hver einasti íslendingur þarf að skilja það, að það er undir okkur
sjálfum komið, hvort við fáir og smáir og vopnlausir vinnum sigur f
baráttunni við hið volduga Bandaríkjaauðvald grátt fyrir járnum. Hver
einasti fslendingur, sem hugsar eins og íslendingur, verður að skilja
það, að þegar hann greiðir atkvæði sitt, sannfærir félaga sinn um það
hvemig honum beri að greiða atkvæði, ákveður að gerast áskrifandi að
Þjóðviljanum, eða aflar Þjóðviljanum nýs kaupanda, þá er hann að heyja
baráttu sem sköpum ræður um örlög íslands. í daglegu starfi sfnu
er hann hermaður á þeim vígvelli, sem sker úr um sigur eða ósigur.
Það voru spádómsorð, sem Einar Benediktsson kvað í aldamótaljóð-
um sínum:
,JHér þarf hugar og máls,
skilja málstað síns sjálfs,
og að muna hvað skeð er,
sú þraut virðist létt,
bara sitja við borðið
og segja eitt orð,
vera sammála aðeins
um það sem er rétt“.
Undir þessum merkjum sigruðum við i sjálfstæðisbarátuntni við Dani.
Undir þessum merkjum getum við einnig sigrað f hinni nýju sjálfstæðis-
baráttu við hið ameríska kúgunarvald."
★
Þótt vér stæðum einir í veröldinni, íslendingar, í einvígi
við hið ameríska tröll, eingöngu týgjaðir vopnum andans og
samtaka vorra, þá myndum við samt berjast — og þótt vér féllum,
myndum vér halda velli, svo lengi sem vér áhtum oss sjálfir
ekki sigraða. (Vér gerðum það einu sinni í sex aldir).
En vér stöndum ekki einir.
Ameríska auðtröllið er á leirfótum.
Þjóðir heims, og alþýðustéttir allra landa, rísa upp gegn því.
Dagar þess eru brátt taldir, hvort sem það kýs í örþrifaæði að
feggja til orustu um allan heim og líða undir lok í Ragnarökum
auðs og peningavalds, eða það hopar hægt á hæl fyrir þróunar-
öflum þjóðfélagsins að hætti aðals og einveldis á síðari hluta
19. aldar og deyr hægum dauðdaga feigra drottinvalda.
Við vitum að málstaður alþýðunnar sigrar, að ofurvald auðsins
er dauðadæmt.