Réttur


Réttur - 01.01.1952, Page 71

Réttur - 01.01.1952, Page 71
RÉTTUR 71 á annað borð yrði gengið inn á þessa óheillabraut, þá væri þó a. m.k. sjálfsagt að nota féð eingöngu til atvinnulegrar uppþyggingar. En ekki einu sinni það hefur verið gert nema að nokkru leyti. Efnahagsaffstoð, hjálp, viffreisn, eru hin glæsilegu nöfn, sem starfsemi þessi hefur hlótið á íslenzku máli. Höfðu íslendingar svo mikla þörf fyrir gjafafé til viðreisnar atvinnulífi sínu árin 1947—48? Hvað segja dæmin um það? í ársbyrjun 1947 tók ríkis- stjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar við völdum. Þá hafði nálega engin endurnýjun á togaraflotanum átt sér stað í 17 ár. En í sama mánuði og sú stjórn settist í valdastólana komu fyrstu nýsköpunartogararnir til landsins. Síðan streymdu þeir viðstöðulaust heim, þar til 30 nýir togarar höfðu gjörsamlega endurnýjað togaraflotannn íslenzka. Vélbátaflotinn var þá mjög endurnýjaður, verzlunarskipaflotinn stóraukinn. Bæði í iðnaði og landbúnaði voru að gerast stórar breytingar til aukinnar tækni. Atvinnuleysi var ekki til. Allur almenningur hafði í fyrsta sinn orðið það sem kalla má bjargálna. Efnahagsöryggi flestra einstaklinga var meira en nokkru sinni fyrr. Auk þessa er ótalið það, sem reynt hefur verið mjög að leyna í opinberum umræðum, aff af þeim innstæffum, sem þjóffin átti erlendis og hæst námu milli fimm og sex hundruff millj. voru eftir ónotaffar 168,8 millj. þegar frá voru dregnar rúmar 54 millj. sem ógreitt var vegna togarakaupanna og lagðar höfðu verið til hliðar. Þessar 168,8 millj. nálguðust að vera þriðjungur innstæðnanna. Hvað var það sem gat rekið íslendinga til þess að gerast þátttak- endur í þessari stofnun? Að því mun komið síðar. Eitt af því, sem áunnist hafði á þeim árum er sósíalistar störfuðu með í ríkisstjórn voru stórkostlegir viðskiptasamningar við Sovétríkin. Árið 1946 var gerður viðskiptasamningur um út- flutning til þeirra, er nam 74 millj. kr. En vegna þess að íslend- ingar höfðu ekki nóg vörumagn til að uppfylla samninginn, varð útflutningurinn ekki nema 58 millj. tæpar. Innflutningur þaðan til íslands var aftur á móti aðeins 9 millj. og mismunurinn ca. 49 niillj. kr. var greiddur í dollurum. Til sönnunar því hve viðskipti þessi voru okkur mikilvæg skal hér birt umsögn úr skýrslu Landsbankans fyrir árið 1947 um þennan samning. Þar segir svo: „Frá ársbyrjun 1946 tók svo fyrir sölu á freðfiski til Bretlands og var mikil óvissa ríkjandi í afurðasölunni, þar til samningar tókust sama ár í maí um sölu á miklu magni af freðfiski o. fl. til Rússlands. Síldarlýsi og síldarmjöl voru einu sjávarafurðir sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.