Réttur


Réttur - 01.01.1952, Page 87

Réttur - 01.01.1952, Page 87
RÉTTUR 87 vart dollar og hækkaði þá verð á öllum dollaravörum um 44 prósent. Ekki var þó þetta talið nægilegt. Mestur hluti þingsins 1949 fór í átök um hina algeru gengislækkun er fram fór í marz 1950, og hækkaði þá gengi alls erlends gjaldeyris gagnvart ísl. kr. um hvorki meira né minna en 74,3%. Þótt þetta væri gert undir því yfirskyni að verið væri að bjarga bátaútveginum og útflutningsverzluninni þá vita engir betur en sjálfir þeir valdhafar, er þessu réðu að gengislækkunin var framkvæmd, samkvæmt vestrænni skipun, í samræmi við skil- yrðið um að viðhalda réttu gengi. Bezta sönnun þess, að gengislækkunin kom útveginum ekki að gagni er sú, að réttu ári síðar en hún var framkvæmd þurfti að grípa til nýrra ráðstafana. Var þá bátagjaldeyrisfyrirkomulag- ið upp tekið og í því fólgið að bátaútvegsmenn fengu allmikinn hluta gjaldeyrisins, er þeir mega flytja fyrir ákveðnar vöruteg- undir inn í landið og fá jafnframt einkaleyfi til að selja þær á því verði er þeim sýndist. Þetta er því ekkert annað en dulin gengis- lækkun er nær til viss hluta af bæði framleiðslunni og inn- flutningnum. En þetta sýndi sig vera einnig bráðabyrgðaráðstöfun, því í janúar 1952 varð að útvíkka þetta fyrirkomulag og láta það ná til margskonar nauðsynjavara, og gengislækkunin þar með gerð ennþá víðtækari. Nú hefur það raunar komið í ljós, að það varð ekki útgerð- in, sem fleytti rjómann af þessum ráðstöfunum. Birtar hafa verið tvær opinberar skýrslur frá verðgæslustjóra hin fyrri í sept. og hin síðari í des. s. 1. ár. Samkvæmt fyrri skýrslunni liggur íyrir athugun á vörumagni, sem í innkaupi kostaði 1 millj. 958 þús. kr. Síðan bættust við það bátagjaldeyrishagnaður 738 þús. kr., verzlunarálagning 2 millj. 413 þús. kr. og frakt, tollar og söluskattur 2 millj 391 þús. kr. Útsöluverð 7,5 millj. kr. Síðara dæmið innifelur vörumagn sem í innkaupi kostaði 2 millj 316.000 kr. en útsöluverð yfir 9 millj. Af þeirri nærri 7 millj. kr. hækkun sem á þessu varð fékk bátaútvegurinn 941 þús. kr. Hitt fer til verzlunarstéttarinnar og ríkisins. Jafnframt þessu var tekið á móti 200 millj. kr. í Marshallgjafir á einu ári til þess að auka innflutning og gefa verzlunina frjálsa sem kallað er, eins og fyrr er sagt. Einn af þingmönnum Alþýðu- llokksins upplýsti það í þingræðu, að þær 114 millj. kr. frá Greiðslubandalagi Evrópu sem í þessu tilfelli bættist við, væru bundnar því skilyrði að kaupgjald yrði ekki látið hækka þrátt fyrir þær gífurlegu verðhækkanir, er öllum þessum ráðstöfunum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.