Réttur - 01.01.1952, Síða 114
114
RÉTTUR
En hér er aðeins stigið fyrsta skrefið, ef forða á fiski-
miðunum frá tortímingu vegna sívaxandi ágengni erlendra
togara. Þrátt fyrir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að
grunnlínan sé dregin frá yztu annesjum, eyjum og skerj-
um er svo hvergi nærri alstaðar í raun. Geirfugladrangur
er t. d. ekki notaður sem grunnstaður og fyrir bragðið
verður Eldeyjargrunnið enginn griðastaður og svo er um
ýms helztu togaramiðin. Grímsey er heldur ekki notuð
sem grunnstaður. Hafa fiskimenn haft á orði, að svo væri
að sjá, sem friðun þessari væri frekar stefnt gegn íslenzkri
bátaútgerð en veiðum erlendra togara. Og eftir er það, sem
mikilvægast er, að lýsa yfir skýlausum rétti íslendinga yfir
öllu landgrunninu.
Ekki þykir leika vafi á því, að áður en ríkisstjórnin gaf
út reglugerðina, hafi hún haft náin samráð við brezku
stjórnina og að ýmislegt í framkvæmdinni sé að hennar
ráðum. 1 svari íslenzku ríkisstjórnarinnar er líka viður-
kennt að slíkar viðræður hafi farið fram. Ber þá einnig að
líta á orðsendingar þær, sem milli stjórnanna fara í öðru
ljósi. Það sem sagt er opinberlega, væri þá framar öllu
hráskinnaleikur um almenningsálitið í báðum löndum. Er
nokkur uggur í mönnum um það, hvaða loforð kunna að
hafa verið gefin varðandi aðgerðir til vemdar landgmnns-
ins.
Aukinn stríðsundirbúningur hernámsliðsins.
Undanfarið hefur hernámsliðið ameríska verið allat-
hafnasamt hér á landi. Á Rangárvöllum er unnið að undir-
búningi flugvallargerðar og mikilla hernaðarmannvirkja.
Mikið magn hverskonar hergagna hefur verið flutt til lands-
ins og f jöldi einkennisbúinna manna til að vinna að hem-
aðarframkvæmdum. Virðist íslenzka ríkisstjórnin leggja
á það ríka áherzlu að menn séu fluttir inn til að vinna þessi
verk, en íslenzkt vinnuafl ekki notað, til þess að raska ekki
hinu fræga „jafnvægi framboðs og eftirspurnar á vinnu-