Réttur


Réttur - 01.01.1952, Page 126

Réttur - 01.01.1952, Page 126
126 RÉTTUR drepur þar einnig á gagnrýni vesturlenzkra erfðafræðinga og skýringatilgátur þeirra á þessum fyrirbærum og hversvegna þær fái ekki staðizt. Að lokum ræðir hann svo vísindalegt og þjóðfé- lagslegt gildi hinnar nýju kenn- ingar á mjög fróðlegan og skemmtilegan hátt. Er þar m. a. drepið á fjölþættar rannsóknir á ýmsum sviðum líffræði og líf- efnafræði, sem hún hefur hrundið af stað. Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, en segja það að lokum, að ég hef ekki rekizt á aðra bók handhægri eða yfirlits- gleggri um þessi mál en þá, sem hér um ræðir, og vil eindregið mæla með henni við þá, sem á- huga hafa á þessum efnum. Á.B.M. Friedrich Engels: Uppruni fjölskyldunnar, einkaeign- arinnar og ríkisins. í tengsl- um við rannsóknir L. II. Morgans. Ásgeir Bl. Magn- ússon þýddi. Rvík. Bóka- útgáfan Neistar 1951. Þá er eitt allra bezta rit Engels: Uppruni fjölskyldunnar, komið út á íslenzku í ágætri þýðingu Ásgeirs Bl. Magnússonar og sér- lega vandaðri útgáfu. Hefur út- gefandi auðsjáanlega ekkert til sparað að gera þessa merku bók sem allra vandaðasta. Hún er 254 síður á ágætum pappír, vel innbundin, og henni fylgja hin beztu yfirlit og tvær myndir: önnur af Engels sjálfum en hin af titilsíðu fyrstu útgáfunnar á þýzku 1884. Þýðandinn skrifar ýtarlegan formála að bókinni og kemur þar inn á ýmsar síðari tíma kenning- ar og „gagnrýni" á þessa bók. Það mun vart nokkurt af fræði- ritum þeirra Marx og Engels eiga eins sérstaklega erindi til vor íslendinga vegna þjóðararfs vors eins og þessi bók. Raunverulega er þessi bók mannkynssaga áður en hin skrifaða saga hefst en það þýðir: fyrst og fremst saga ætt- sveitaskipulagsins, þess mannfé- lagsforms, sem ríkti á því sögu- skeiði, sem kallast „hálfsiðun'* (barbarí) og lýkur, er ritlistin hefst. Og ef til vill hefur engin þjóð varðveitt minjar og leyfar þessa ættsveitafélags mannanna eins vel og lengi og íslendingar. Sé þessi saga lesin með athygli opn- ast mönnum ný og betri sýn inn í þann forna heim ættasamfé- lagsins, sem við íslendingar fram- ar öðrum þjóðum höfum svo greiðan aðgang að, af því vér get- um lesið ættarsögurnar og hetju- sögur og kvæði hins fallandi ættasamfélags enn á vorri tungu. Þetta er því bók, -sem á erindi til allra íslendinga, sem vilja skilja til hlítar sögulega þróun og myndun vors eigin gamla þjóð- veldis og stofnana þess. Og alveg sérstaklega á þessi bók erindi til allra íslenzkra sós- íalista, sem þurfa að temja sér söguskoðun marxismans og vilja öðlast skilning á þjóðfélagsleg- um grundvelli þess, sem vér erum stoltastir af í þjóðararfi vorum: fornbókmenntunum og mann- gildishugsjónum þeirra: arfi hins gamla ættasamfélags. ■Þökk hafi þýðandi og útgef- andi fyrir að þessi ágæta bók er nú fáanleg á íslenzku. Nú er það
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.