Réttur - 01.06.1952, Qupperneq 16
144
RÉTTUR
Þann 15. ágúst afhenti nefndin undirskriftalistana dóms-
málaráðuneytinu, en skrifstofu forseta var samtímis af-
hent annað frumrit af bréfi því, er með fylgdi. Nokkru
síðar áttu fulltrúar nefndarinnar formlegt viðtal við for-
setann um málið, en hann hafði góð orð um, að það yrði
tekið fyrir í ríkisráði.
★
Þátttaka almennings hvarvetna á landinu í undirskrift-
unum var mjög athyglisverð. Framlag hinna smærri staða
var mjög til fyrirmyndar. Frá Raufarhöfn t. d. komu 190
nöfn, frá Súðavík 116, frá Njarðvíkum 187. Úr sveitum kom
og fjöldi undirskrifta. Ýmsir áhugamenn í sveitum skil-
uðu allt að 100 nöfnum hver. Sumsstaðar bjuggu menn
sjálfir til aukalista, þar sem lista nefndarinnar þraut.
Margar hlýjar kveðjur bárust forstöðunefndinni. Rétt er
að geta þess, að víða skrifuðu prestar undir fyrstir manna.
Áberandi voru nöfn bænda, en þó einkum sjómanna.
Mun ef til vill verða unnt að birta í næsta hefti „Réttar“
nánari greinargerð um undirskriftir á einstökum stöðum
o. fl., sem til fróðleiks mætti vera.
Framlag margra einstaklinga í undirskriftasöfnuninni
var frábært. Hér verður þó aðeins getið methafans, Þor-
valdar Þórarinssonar, lögfræðings, er safnaði 600 undir-
skriftum og lagði að auki óhemjustarf fram við skipu-
lagningu söfnunarinnar.
Einkennandi fyrir undirskriftasöfnunina var óvenju-
lítill reksturskostnaður, en hann nam ca. 6000 krónum, sem
mestmegnis var mætt með f járframlögum einstakra manna
auk Dagsbrúnar, er veitti 500 krónur. Hefði mörgum
stjórnmálaflokknum þótt vel sloppið með þá upphæð, en
27 000 atkvæði í aðra hönd.
Auk alls annars færði undirskriftasöfnunin íslenzku
þjóðinni nýtt og einstætt menningarsögulegt plagg, sem