Réttur


Réttur - 01.06.1952, Page 19

Réttur - 01.06.1952, Page 19
RÉTTUR 147 íbúatala landsins er nú tæpar tíu milljónir. Eru það nær ein- göngu Magyarar, en þeir eru eins og kunnugt er af mongólskum uppruna þótt ekki gæti þess nú orðið í útliti þeirra, skyldir Finnum og Eistum. Þeir settust að í Ungverjalandi um svipað leyti og ísland var byggt. Smjör af hverju strái Það eru svipmikil umskipti að koma frá íslandi til Ungverja- lands um síðsumarsleytið, eins og ég gerði 1951, þegar allur hinn fjölbreytti jarðargróður er um það bil að ná þroska. Þegar maður ekur um héruðin umhverfis Búdapest og virðir fyrir sér landið, verður maður agndofa andspænis allri þeirri frjósemi, sem þar blasir við augum. Á sléttunni endalausir akrar, mest hveiti og maís. í hæðum og daladrögum eru matjurtaakrar, vínekrur, ald- intré og fjöllin eru þakin nytjaskógi upp á koll. Golublærinn leikur um kornöxin í heitum bylgjum, og sólin er að ljúka við að sæta safann í vínberjunum og seiða fram hið beiska krydd í papríkuna. Hér má sannarlega segja, að það drjúpi smjör af hverju strái. Hvernig er hægt að láta sér detta í hug fátækt í slíku landi? Og þó var raunin sú, meðan hið gamla skipulag var við lýði, að stór- um hluta þjóðarinnar voru allar bjargir bannaðar. Hinir örsnauðu beiningamenn skiptu milljónum. Það fór engu minna orð af armóði íbúanna en frjósemi landsins. En til þess að gera sér grein fyrir hvernig í því liggur, og einnig til að geta skilið þróun síðustu ára er nauðsynlegt að rifja stuttlega upp nokkur atriði úr sögu landsins. Örstutt sögulegt yfirlit Ungverjaland bjó öldum saman við erlenda kúgun. Sjálfstæði sitt missti það, er það beið ósigur fyrir Tyrkjum á öndverðri 16. öld. Þegar Habsborgarar stöðvuðu sigurför Tyrkja og hrundu þeim aftur suður á Balkanskaga, náðu þeir tangarhaldi á Ungverjalandi og slepptu því ekki aftur. Þeir gerðu bandalag við háaðalinn ung- verska, hjálpuðu honum til að sölsa undir sig lönd og fé og tryggðu honum öll fyrri réttindi hans óskert. Frá þessum tíma er t.d. hinn mikli auður Esterházy-ættarinnar. Þetta ræningjabandalag hélzt æ síðan og varð grundvöllur hinnar tvíþættu kúgunar — hinnar þjóðernislegu og stéttarlegu — er ungverska þjóðin varð að þola. Þegar hinar miklu frelsishræringar fóru um Evrópu 1848, risu Ungverjar gegn yfirdrottnurum sínum, austurríska keisaraveld- inu, undir forystu hins frjálslynda borgara Kossuths. En uppreisn-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.