Réttur - 01.06.1952, Blaðsíða 29
BÉTTUR
157
nemi alls 600 þús. til 650 þús. verkamanna og starfsmanna. Þetta
vinnuafl á að koma að verulegu leyti frá landbúnaðinum, þar sem
hinn aukni vélakostur leysir það af hólmi, en einnig er gert ráð
fyrir að konum fjölgi til muna í iðnaðinum.
Áætlað er, að þjóðartekjurnar aukist á tímabili fimm-ára-áætl-
unarinnar um 120—140%. Þáttur kapítalistísks reksturs í þjóðar-
búskapnum minnkar á tímabilinu úr 20% niður í 1—2%. Það þýð-
ir, að arðrán má kallast úr sögunni í lok áætlunarinnar, hins vegar
táknar það ekki, að allur atvinnurekstur sé orðinn með sósíalist-
ísku sniði. Töluvert verður enn af alls konar smáatvinnurekstri
í einkaeign, einkum í landbúnaðinum, en þar vinna eigendurnir
sjálfir og fjölskyldur þeirra eingöngu að framleiðslunni.
í samræmi við hina miklu aukningu þjóðarteknanna batna lífs-
kjörin stórlega. Gert er ráð fyrir aukinni kaupgetu, sem nemi
50—55% í lok áætlunarinnar. Kemur þessi bætti hagur fyrst og
fremst fram í því, að hver einstaklingur veitir sér meira af alls
konar neyzluvörum. Þannig er gert ráð fyrir, að neyzla hafi auk-
izt á mann í lok áætlunarinnar miðað við neyzluna árið 1950: á
mjólk 45%, sykri 30—35%, feitmeti 25%, ennfremur kaup á skó-
fatnaði 50—60%. Hækkun lífskjaranna verður að vísu ekki jafn-
mikil í öllum stéttum. Mest verða umskiptin meðal þeirra, sem
fátækastir voru, t.d. meðal iðnaðarverkamanna, sem lifðu við sár-
ustu fátækt fyrir stríð, svo og meðal mikils hluta sveitaalþýðunn-
ar. Einnig batna kjör menntamanna og listamanna stórlega. Veitt
eru verðlaun fyrir framúrskarandi afrek á andlegu sviði. Þau eru
kennd við frelsishetjuna Kossuth og nema 20 þúsund forint. Þá er
það mikilvægt atriði varðandi afkomu almennings, að atvinnuleysi
er ekkert í landinu, og æ fleiri einstaklingar eiga kost á að afla
sér tekna. Þannig voru þeir, sem tóku laun í apríl 1950 170.000
fleiri en í sama mánuði árið áður. En auk launanna njóta laun-
þegarnir mikilvægra félagslegra hlunninda. Eru þau metin hér
um bil 38% miðað við grunnlaun. Þessi fríðindi eru orlof á fullum
launum, 8 greiddir hátíðisdagar, dvöl á hressingarhælum fyrir
lágt verð, launaviðbót vegna heimilisstofnunar og vegna ómaga,
ýmis hlunnindi menningarlegs eðlis (menningarmiðstöðvar, skól-
ar o.s.frv.), ókeypis tryggingar. Launþegarnir þurfa hvorki að
greiða skatta né iðgjöld, því að vinnuveitandinn greiðir allt slíkt.
Geysistór upphæð — 1,7 milljarðar — er í fimm-ára-áætluninni
ætluð til byggingar skólahúsa fyrir alls konar skóla. Eins og áð-
ur var minnst á voru skólarnir í hinu gamla Ungverjalandi ekki
ætlaðir alþýðu manna og gátu ekki veitt viðtöku nema mjög fá-
um. Iðnvæðing landsins útheimtir hins vegar almenna fræðslu