Réttur


Réttur - 01.06.1952, Side 32

Réttur - 01.06.1952, Side 32
160 RÉTTUR veldunum er reyndar eins og vænta má þveröfugur við þennan áróður. Ráðstjórnarríkin hafa frá upphafi verið hinum ungu al- þýðulýðveldum betri en ekki. Það var Rauði herinn sem hrakti þýzku nasistaherina og bandamenn þeirra, hina innlendu fasista, úr þessum löndum og leystu þau með því úr langri ánauð. Það er ennfremur hernaðarmáttur Ráðstjórnarríkjanna, sem hefur hindrað það, að sú hernaðaríhlutun af hálfu auðvaldsríkjanna, sem Eisenhower hefur nú í hótunum um, væri framkvæmd fyrir löngu. Til þess benda ótvírætt afdrif ungversku verkalýðsbylt- ingarinnar 1919. Það er að vísu að nefna snöru í hengds manns húsi að minnast á erlenda aðstoð í Marshalllandi, en sannleikurinn er samt sá, að Ráðstjórnarríkin hafa veitt alþýðulýðveldunum mikilvæga efnhagslega aðstoð, og sérstaklega hefur sú reynsla, er þau hafa öðlazt í uppbyggingu sósíalismans, orðið hinum ungu ríkjum að ómetanlegu liði. Þessi bróðurlega hjálp hefur gert alþýðulýðveld- unum fært að reisa atvinnulíf sitt úr rústum á miklu skemmri tíma en þau hefðu að öðrum kosti getað. Varðstaða Ráðstjórnarríkjanna um sjálfa tilveru alþýðulýð- veldanna og efnahagsaðstoð þeirra við þau táknar þó ekki skerð- ingu á sjálfsforræði þeirra. Þessi staðreynd er svo algert brot á viðskiptalögmálum kapítalismans, brýtur svo gersamlega í bág við alla reynslu af samskiptum stórvelda og smáríkja innan auð- valdsheimsins, að afturhaldsöflin á vesturlöndum hafa séð sér leik á borði að snúa henni við og gera úr henni eitt hið hat- rammasta áróðursefni. Ungverska fimm-ára-áætlunin er eins skýr sönnun og á verður kosið um það, að Ungverjaland er raunverulega frjálst og full- valda ríki og býr ekki við erlenda kúgun af neinu tagi. Þess eru engin dæmi í sögunni, að nokkurt ófrjálst land, hvað þá land, sem býr við hatrammari kúgun en nokkur nýlenda, eins og Banda- ríkjaáróðurinn heldur fram um alþýðulýðveldin, hafi byggt upp atvinnuvegi sína nokkuð í líkingu við það, sem Ungverjaland gerir nú með fimm-ára-áætlun sinni. Slík þróun er fullkomlega ósamrýmanleg erlendri kúgun, því að hún væri öruggasta leiðin til að aflétta slíkri kúgun. Þegar í ljós kemur á fyrsta ári fimm- ára-áætlunarinnar, að afköstin fara langt fram úr því, sem áætlað var, er ekki verkafólki sagt upp vinnu, ekki dregið úr framkvæmd- um til að koma á „jafnvægi", eins og það mundi vera kallað hér, heldur er áætluninni einfaldlega breytt til samræmis við hina auknu framleiðslugetu þjóðarinnar. Og hér var ekki um nein- ar smávegis breytingar að ræða, heldur aukningu heildarfjárfest-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.