Réttur


Réttur - 01.06.1952, Side 37

Réttur - 01.06.1952, Side 37
RÉTTUR 165 Starfsaldur þessara manna hjá Vélsmiðjunni Héðni var frá 14—19 ár. Svo það getur varla talizt óeðlilegt þó við- komandi reyndu að fá upplýsingar hjá forstjóranmn um ástæður fyrir uppsögninni. Og varla heldur að undra þó mönnum komi ýmislegt í hug þegar litið er til stöðu þessara manna í stéttarfélagi þeirra. Eftir ítrekaðar tilraunir tókst mér og Kristni Ág. Eiríks- syni að ná tali af forstjóranum, Sveini Guðmundssyni, seinna þennan sama dag. Báðum við hann að tilgreina á- stæður fyrir uppsögn okkar, en hann neitaði að gefa þær upp, eins og fram kemur í upplýsingum frá mér er hér birtist síðar, en upphaflega voru sendar dagbl. í Reykjavík vegna skýrslu er Sveinn birti í Morgubl. og víðar, þ. 13. sept, um „ástæður" fyrir uppsögn okkar. Þegar verkstjórar okkar voru spurðir að því hvort þeim hefði verið kunnugt um uppsögn okkar áður en hún var framkvæmd, kváðu þeir nei við því. Uppsögn okkar tilkynnti forstjórinn verkstjórum „sín- um“ á fundi, er hann hélt með þeim samdægurs, eftir að hann hafði sagt okkur upp. Tilkynning hans mun hafa hljóðað þannig, eftir því sem næst verður komist: „Þremur starfsmönnum var sagt upp atvinnu hjá fyrir- tækinu í dag þeim: Snorra Jónssyni, Kristni Eiríkssyni og Jónasi Hallgrímssyni. Málið verður ekki rætt“. — Enda mun svo ekki hafa verið og forstjórinn tekið fyrir „næsta mál“. Daginn eftir 9. sept., héldu starfandi sveinar í Héðni fund um málið. Fundurinn var vel sóttur. Á þessum fundi var samþykkt samhljóða eftirfarandi tillaga: „Við undirritaðir sveinar, sem vinnum í Vélsmiðjunni Héðni h.f. mótmælum tilefnislausri uppsögn þriggja starfs- manna fyrirtækisins, þeirra Jónasar Hallgrímssonar, Kristins Eiríkssonar og Snorra Jónssonar. Jafnframt á-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.