Réttur


Réttur - 01.06.1952, Side 40

Réttur - 01.06.1952, Side 40
168 RÉTTUR knúin til þess að taka þremenninga tafarlaust aftur í starf sitt. Trúnaðarmannaráð félagsins heitir hinum ofsóttu fé- lögum í Félagi jámiðnaðarmanna öllum þeim stuðningi er það má, í því skyni að þessari ofsókn Vélsmiðjunnar Héðins verði hrundið.“ Mótmæli gegn brottrekstrinum og heit um stuðning bár- ust einnig frá eftirfarandi verkalýðsfélögum og f jórðungs- samböndum: Félagi bifvélavirkja, Reykjavík. Félagi blikksmiða, Reykjavík. Félagi járniðnaðarnema, Reykjavík. Félagi starfsfólks í veitingahúsum. Sveinafélagi húsgagnasmiða Félagi húsgagnabólstrara Sveinafélagi skipasmiða Verkamannafélaginu Bjarmi, Stokksejnri Alþýðusambandi Norðurlands Alþýðusambandi Vesturlands Verkamannafélaginu Hlíf, Hafnarfirði Verkamannafélaginu Þrótti, Siglufirði Verkakvennafélaginu Einingin, Akureyri Verkamannafélagi Akureyrarkaupstaðar. Fimmtudaginn 11. sept. var enn haldinn fundur í Félagi járniðnaðarmanna. M.a. gaf formaður nefndar þeirrar, er kosin var af félaginu til að eiga viðræður við forstjóra Vélsmiðjunnar Héðins, skýrslu um störf nefndarinnar. 1 skýrslu hans kom það fram, að forstjórinn hafði stung- ið af úr bænum daginn eftir að hann framdi uppsagnimar og því hefði nefndinni ekki tekist að ná tali af honum. En staðgenglar forstjórans í Héðni hefðu náð tali af honum, í síma, og sagt honum af nefnd félagsins ,en hann neitað að eiga viðtal við nefndina. Síðan hefði hann þó breytt þeirri ákvörðun sinni, sagðist hann þá kannske koma í bæ- inn daginn eftir og þá gjarnan vilja tala við nefndina.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.