Réttur - 01.06.1952, Page 42
170
RÉTTUR
til að fá vinnu. — Einhvem tíma hefði verið talað um
mútuboð af minna tilefni. Fínna væri kannske að kalla
slíkt boð um fébætur vegna misgerða bjóðanda.
Næsta morgun birti svo Morgunblaðið „skýrslu" frá
forstjóranum um málið. Þar var mikið talað um að hinir
brottreknu hefðu ætlað að stöðva sjálfa Iðnsýninguna, auk
þess sem forstjórinn gaf þessum fyrrverandi starfsmönn-
um fyrirtækis síns þau meðmæli að vegna vinnunnar og
fyrirtækisins hefði hann neyðst til að segja okkur upp.
Þessum rógburði og fyrrum svaraði ég fyrir hönd okkar
þriggja með eftirfarandi yfirlýsingu, sem öll dagblöðin í
bænum, önnur en Morgunblaðið, birtu:
„Vegna greinargerðar Sveins Guðmundssonar forstjóra
Vélsmiðjunnar Héðins, í þremur dagblöðum í gær, vil ég
lýsa yfir því að hann fer með helber ósannindi þar sem hann
segir, að við þremenningarnir, er sagt var upp störfum hjá
fyrirtækinu, höfum haft í hótunum við vinnufélaga okkar í
sambandi við eftir- og næturvinnu við Iðnsýninguna.
Þessi tilhæfulausa ásökun er ekkert annað en tylliáá-
stæða, tilbúin eftir á, sem bezt má sjá af því, að þegar ég og
varaformaður félagsins hittum forstjórann að máli strax
kvöldið sem hann sagði okkur upp, þá kvað hann, aðspurður
um ástæður fyrir uppsögninni, hana enga aðra en þá sem
tilgreind væri í uppsagnarbréfinu, en 1 því er engin ástæða
tilgreind. Ég tjáði forstjóranum bá, að við óskuðum þess
að fá tækifæri til að koma að leiðréttingu, gæti hér verið
urn einhvern misskilning að ræða. Komst forstjórinn þá svo
að orði að það væri óþarfi, því ekkert slíkt væri fyrir hendi.
1 sambandi við mnmæli forstjórans í dagblöðunum í gær
skal það skýrt tekið fram að hvorki ég eða varaformaður
félagsins skiptum okkur á nokkurn hátt af mönnum þeim,
er unnu við Iðnsýninguna, eða höfðum á annan hátt nokkur
afskipti af vinnu þar, enda bundnir annarsstaðar við vinnu
hjá fyrirtækinu. Hinsvegar mun trúnaðarmaður félagsins
á vinnustaðnum hafa komið að máli við yfirverkstjórann á