Réttur - 01.06.1952, Síða 46
Sturla Þórðarson
gegn Noregskonungi
eftir GUNNAR BENEDIKTSSON
(Síðari hluti ritgerðar um Sturlu Pórðarson sagnaritara úr óprent-
uðu ritgerðasafni um Sturlungaöld: „ísland hefur jarl". Hér er komið
sögu, er' Þórði kakala var þröngvað til að fara á konungsfund 1250,
en úr þeirri för átti hann ekki afturkvæmt til landsins).
4. Trúnaðarmannabanðalag Þórðar kakala.
Til þessa tíma hafði aldrei einn maður haft eins mikil völd á
íslandi og Þórður kakali hafði, þegar hann fór í þetta sinn á kon-
ungsfund. Og hann býr sig undir það, að ríki hans liggi ekki laust
fyrir, þótt til átaka kæmi. Hann skilur við landið í höndum nokkurs
konar fylkisstjóra, sem hann gefur fyrirskipun um, að „hver þeirra
skyldi veita öðrum, ef nokkurs þyrfti við“, og „þeir skyldu fyrir
engum laus láta ríki þessi, nema bréf Þórðar kæmi til eða hann
sjálfur". Þessir eru saman komnir á Grund: Þorleifur í Görðum,
sonur Þórðar Böðvarssonar, ömmubróður Þórðar kakala, tekur
við Borgarfirði. Hrani Koðránsson tekur við Eyjafirði, þremenn-
ingur við Þórð frá Böðvari í Görðum. Eyjólfur Þorsteinsson,
tengdasonur Sturlu Sighvatssonar, tekur við Skagafirði. Aðrir
höfðingja bundnir í trúnaði eru þessir: Sæmundur Ormsson höfð-
ingi Skaftfellinga giftur annarri dóttur Sturlu Sighvatssonar, —
vestfirzku höfðingjarnir Hrafn Oddsson og Vigfús Gunnsteinsson,
giftir sinni Sturludótturinni hvor Sighvatssonar, og svo Sturla
Þórðarson, bræðrungur Þórðar. Auk þessa átti Þórður sterk ítök í
Rangárþingi fyrir áhrif Hálfdanar á Keldum, sem giftur var Stein-
vöru systur hans. Austfirzku höfðingjarnir Þorvarður og Oddur
Þórarinssynir eru ekki með í þessu bandalagi, en áður „viku þeir
öllum sínum málum undir Þórð og hans forsjá". Veldi þessara trún-
aðarmanna Þórðar spennir þannig um allt land, svo að hvergi er