Réttur - 01.06.1952, Blaðsíða 55
RÉTTUR
183
þeir Gissur jarl með kærleikum miklum“. Síðar gérðist hann
lendur maður Gissurar og fékk loforð fyrir Borgarfirði „og þar
öðrum sæmdum með“.
Nú mætti virðast, sem lokið mundi óþokka þeim, sem Sturla
hafði á allri konungsskipan. En þannig ber ekki á að líta. Enn
fer það saman, að um leið og Sturla gerist lendur maður Gissurar,
þá fær konungur þær spurnir af íslandi, „að Gissur jarl hafi
lítinn hug á að flytja mál hans við íslendinga“. Konungur sendi
tvo hirðmenn sína til landsins, þá ívar Arnljótarson og Pál Lín-
saumu. Þegar þeir hafa svo flutt konungi skýrslu sína, þá sendir
hann næsta sumar þriðja hirðmann sinn, Hallvarð gullskó. En
hann víkur sér ekki beint að Gissuri jarli. Fyrsta höggið reiðir
hann að Sturlu Þórðarsyni. Hann tekur undan honum Borgar-
fjörð, sem Gissur hafði veitt honum, og veitir honum andstæðingi
þeirra beggja, Hrafni Oddssyni. Að því búnu tekur hann að
þjarma að Gissuri, þar til yfir lauk.
Og nú skal að lokum, áður en skilizt er að fullu við líkurnar
fyrir virkri andstöðu Sturlu Þórðarsonar gegn yfirráðum Hákonar
konungs á íslandi, minnzt á það atriðið, sem mér þykir merki-
legast og ótvíræðast í þessu sambandi. í Sturlungu er þannig sagt
frá eiðtökunni á alþingi 1262, að Vestfirðingar hafi riðið til þings
og svarið þar sína eiða. í skiptingu Sturlungusafnsins í einstök
rit er þessi frásögn látin heyra til íslendingasögu, en um það eru
enn mjög greindar skoðanir, til hvaða tíma íslendingasaga Sturlu
hefur náð, en almennt mun gert ráð fyrir, að síðustu kaflar
íslendingasögu séu ekki skrifaðir fyrr en eftir daga Sturlu og
byggist því ekki á eins traustum heimildum og sagan að öðru
leyti. En Sturla Þórðarson segir frá þessum sömu atburðum í
Hákonarsögu, aðeins fám árum eftir að þeir gerðust. Og þar segir
hann frá á allt annan veg. Er þar fyrst það að nefna, að þar
segir, að Vestfirðingar hafi ekki riðið til þings. En þeir riðu að
vestan fjölmennir, „mundu þeir hafa séx hundruð manna“, en
þeir námu staðar í Borgarfirði, biðu þar málaloka á alþingi og
sóru Hákoni konungi skatt að því loknu á Þverárþingi. En Sturla
segir hér fleira athyglisverðra hluta. Hann segir, að „allir inir
stærstu menn í Vestfjörðum" hafi sent „menn á fund þeirra
bræðra Lofts og Sighvats Hálfdanarsona og svo Andréssonum,
að þeir skyldu ríða til þings með öllum afla sínum fyrir austan
Þjórsá". Við þetta er því bætt, að „Þorvarður Þórarinsson hafði
og heitið að koma með Austfirðingum“. Og enn segir hann fleira
merkilegra hluta. Hann segir það, að Hallvarður gullskór hafi um
veturinn flutt „konungsmál við Vestfirðinga og kom því svo, að