Réttur


Réttur - 01.06.1952, Síða 64

Réttur - 01.06.1952, Síða 64
192 RÉTTUR is“ 1759 og til nýjustu kenninga þeirra Mitsjúrins og Lysjenkos, Sagt er frá aðalatriðunum í skýr- ingum Darvins og Lamarks, Ernest Heackels, K. A. Himirja- sjevs. K. W. Naegelis, J. G. Men- dels, A. Weismanns, o. fl. En lengsti kaflinn fjallar um starf og kenningar Mitsjúrins og Lysjen- kós, og er sagt allrækilega frá rannsóknum þeirra og uppgötv- unum og þeim nýju kenningum, sem þaðan eru runnar. Sowjet-Wissenschaft (Sov- jetvísindi). Verlag Kultur und Forschritt, Berlín. Sovétvísindi heitir tímarit, sem gefið er út á vegum sovétvinafé- lagsins þýzka. Það hóf göngu sína 1948, og komu út 4 hefti á ári. 1950 var gerð á því nokkur breyt- ing, heftunum var fjölgað upp í 8, og skipt í tvo flokka. Fjallar annar um þjóðfélagsvísindi ýmis- konar, en hinn um náttúruvísindi, og koma fjögur hefti í hvorri grein árlega. í þeim flokknum, er um þjóðfélagsvísindi fjallar, er t. d. ritað um heimspeki, hagfræði, sögu, málvísindi, þjóð- mann- fræði, lögfræði, fornminjar o. fl. í hinum flokknum er f jallað um náttúruvísindi allskonar, svo sera eðlis-, efna- og líffræði, jarðfræði, stjörnuvísindi og læknisfræði o. s. frv. Höfundar greinanna eru allir Sovjet-vísindamenn og greina ýmist frá einhverjum upp- götvunum í sinni grein eða þeir rökræða fræðikenninguna, gagn- rýna hana eða leiðrétta. Þá fylgja og riti þessu sérstök aukahefti eða fylgirit, sem fjalla um ýmis- konar vísindaleg efni, og eru þeg- ar orðin milli 20 og 30 talsins. Má nefna þar m. a. safnrit um málvísindi, uppruna og tímabila- skiptingu lénsveldis í Rússlandi, erfðafræðikenningar Lysjenkos og rannsóknir Lepenskaju um frumuna o. fl. o. fl. í heild er tímarit þetta hið þarfasta, með því að það gefur mönnum, þeim er ekki kunna rússnesku, tæki- færi til að fylgjast með því er ger- ist í ýmsum vísindagreinum þar eystra, og er slíkra kynna ei sízt þörf á þeim tímum úlfúðar og svartagaldurs, er nú hafa riðið í garð. Próf. E. H. Meyers: Musik im Zeitgeschehen. Hljóm- listin og samfélagið). Verlag Bruno Henschel und Sohn, Berlín 1952. Margar bækur hafa verið rit- aðar um hljómlist og hljómlistar- sögu og höfundunum oft veitzt erfitt að festa hendur á því fyrir- bæri. Annað veifið leiddust þeir kannski út í hreinar hugsmíðar og fagurfræðilegar vangaveltur eða þá að þeir létu sér nægja vél- ræna upptalningu á æviatriðum og verkum og lýsingu einstakra atriða í stíl og tækni. Höfundur þessarar bókar, sem er kunnur þýzkur hljómlistar- og félags- fræðingur, gerir sér hins vegar far um að rekja sambandið milli hljómlistar og þjóðfélags og sýna okkur eðli hljómlistarinnar og hlutverk. Bókin er stórfróðleg um margt og víða komið við. M. a. er rætt um raunsæi í hljómlist og innantóma formdýrkun o. fl. o. fl. Bókin er skýrt og skemmtilega skrifuð og auðskilin jafnvel þeim, er enga sérmenntun hafa í hljóm- list. Á.B.M.

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.