Réttur


Réttur - 01.01.1953, Page 10

Réttur - 01.01.1953, Page 10
10 RÉTTUR handgenginna hernámsflokka, baráttu sína um örlög þjóðarinnar. Hið ameríska kúgunarvald er að reyna að brjóta þjóðina undir sig. Það beitir til þess öllum þeim aðferðum, sem norskt og danskt kúgunarvald beitti forðum. Og það einbeitir sér gegn þeirri stétt, sem það óttast mest, íslenzkum verkalýð, og þeim flokki hans, sem það hatar og hræðist, þó smár sé, Sósíalistaflokknum. Ameríska ríkisstjórnin hefur með „samningi“ bundið núverandi ríkisstjórn og hernámsflokkana þrjá, til þess að afgreiða fjárlög Alþingis með þeim skilyrðum, sem amerísk ríkisvöld hafa sett. Amerískt auðvald ræður í krafti slíkra „sáttmála“ seðlaveltu og lánsfjárveltu íslands og gengi íslenzkrar krónu. Það ræður í aðal- atriðum hvert við seljum vörur okkar og hvar við kaupum. Það stjórnar því hvort íslendingum sé frjálst að byggja íbúðarhús fyrir sjálfa sig og hverskonar iðjuver við megum reisa. Amerískt her- vald ræður íslandi og er að leggja undir herstöðvar sínar æ stærri hluta landsins. Amerískt hervald er orðið stærsti atvinnurekandi á Islandi og ætlar að gera ófrjóa og skaðlega hernaðarvinnu sína að stærsta „atvinnuvegi" íslendinga, leggja þjóðlega, gagnlega at- vinnuvegi lands og þjóðar í rúst og kippa þannig efnahagslega grundvellinum undan sjálfstæðri tilvéru þjóðarinnar. Slíkt er ægilegra vald en norskir konungar höfðu nokkru sinni í krafti yfirráða yfir skipaferðum til íslands, eða dönsk einokun í krafti yfirráða yfir verzlun við þjóðina. — En eins og þá eru enn til menn, sem kalla þessa kúgun vernd og arðránið gjafir. Ameríska kúgunarvaldið fyrirskipar hinum handgengnu her- námsflokkum sínum þremur hvað þeir skuli gera. Það skipar þrem ráðherrum 1949 að koma til Ameríku og meðtaka Atlantshafs- samninginn. Þeir komu frá Ameríku, kalnir á hjarta, ruglaðir í ríminu, svo hræddir við þjóðina og sjálfs síns samvizku, að þeir létu lögreglu gætu sín á leiðinni. Því þeir komu með lygina að einu lífsvon og dollarann fyrir sinn guð. Ameríska auðvaldið sagði þeim þá að lofa því hátíðlega að aldrei yrðu heimtaðar herstöðvar hér. Og það sendi her sinn svo til að hernema ísland tveim árum síðar. Ameríska kúgunarvaldið bannar flokkum sínum stjórnar- samstarf við Sósíalistaflokkinn — og ræflarnir hlýða — þó með hálfum huga, því þeir óttast að það fari fyrr en varir sem 1942: að þeir þori ekki að mynda stjórn án hans, af því fólkið veiti hon- um vald, eins og þá, sem þeir þori ekki að ganga í gegn. Ameríska kúgunarvaldið skipar hinum handgengnu hernámsflokkum sínum þrem að búa til íslenzkan her, vopna Heimdallarskríl Reykja- víkur gegn alþýðu íslands, og stjórna með ofbeldi eftir amerískri

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.