Réttur - 01.01.1953, Blaðsíða 30
30
RÉTTUR
lagi öllu, höfðu vitanlega þegar hin gagngerðustu áhrif á gang
þessara mála. Þær upphæðir sem í lögum voru ákveðnar til stuðn-
ings þessum framkvæmdum urðu nú hlægilega litlar, og lítils virði.
Það kom því fljótt í ljós, að ef þessi löggjöf ætti að ná tilgangi
sínum, yrði að gera hér breytingar á.
Á þinginu 1940 flutti formaður miðstjórnar Sósíalistafl. Brynjólf-
ur Bjamason frumvarp á þingskjali 154 um verðlagsuppbót á
greiðslur til landbúnaðarins. Segir þar svo:
„Greiða skal verðlagsuppbót á allar greiðslur samkvæmt eftir-
töldum lögum til samræmis við hækkað verðlag og aukinn kostn-
að við framkvæmdir þær, sem styrkur er veittur til miðað við
verðlag 1938, samkvæmt reglugerð er Búnaðarfélag íslands lætur
gera, og ráðherra staðfestir.
1. Jarðræktarlög nr. 8 23. júní 1936.
2. Lög nr. 76 11. jan. 1938 um byggingar- og landnámssjóð.
3. Lög um búfjárrækt nr. 32 8. sept. 1931.
í greinargerð frumvarpsins segir m. a.:
„Kostnaður við landbúnaðarframkvæmdir hefur hækkað mjög
i verði vegna hækkandi verðlags síðan styrjöldin hófst. Styrkurinn
til þessara framkvæmda hefur því í raun og veru lækkað að sama
skapi. Nú má gera ráð fyrir, að þær verðhækkanir, sem þegar eru'
orðnar, séu næsta smávægilegar, borið saman við þær verðhækk-
anir, sem vænta má, ef styrjöldin stendur lengi. Gæti þá svo farið,
að styrkur sá, sem ákveðinn er í jarðræktarlögunum og nýbýla-
löggjöfinni, yrði einskis virði. Væri það hið herfilegasta öfug-
streymi á sama tíma, sem óhemju fjármagn safnast fyrir í eigu
landsmanna, sem ríður á að koma í verðmæti, meðan það er ein-
hvers virði. Eitt af því sem hægt er að gera á styrjaldartímum er
að auka ræktunina. Það er því ekki einasta, að sjálfsagt sé, að
hækka styrkinn til jarðabóta, að sama skapi og verðlag hækkar
heldur mælir líka allt með því, að styrkir og framlög til land-
búnaðar séu stórum hækkuð umfram það. Þess vegna hefur
flutningsm. þessa frumv. einnig lagt fram annað frumvarp um
verulega hækkun á styrk til jarðabóta og húsabóta samkvæmt
jarðræktarlögunum, til hinni smærri býla og miða þær tillögur
að því að gera hverjum íslenzkum bónda kleift að rækta svo býli
sitt, að hægt sé að búa á því sæmilegu búi.
í sambandi við afgreiðslu fjárlaga flytja þingmenn sósíalista
einnig tillögur um stóraukin framlög til landbúnaðarins."
Frumvarp það annað er flutningsm. minnist á í greinargerðinni