Réttur


Réttur - 01.01.1953, Blaðsíða 78

Réttur - 01.01.1953, Blaðsíða 78
78 RETTUR Með gengislækkuninni og þeim ráðstöfunum, sem ameríska leppstjórnin hér gerir síðan, hefur arðránið á íslendingum sem matvöru- (hráefna-) framleiðendum og kaupendum verið aukið stórum. Þegar gengislækkunin var framkvæmd, var sagt að það væri gert fyrir útgerðina. Reynslan er að fiskverðið hefur ekki hækkað til íslenzkra sjómanna við gengislækkunina, reiknað í íslenzkurn krónum, heldur hefur fiskurinn verið seldur með tapi til Banda- ríkjanna, Bretlands og annarra auðvaldslanda, en íslenzkir sjó- menn látnir borga tapið með rýrðum kjörum og íslenzkir neytend- ur verið látnir borga það og gróða hins erlenda auðvalds á fiskin- um með bátagjaldeyrinum og gengislækkuninni. Hinsvegar hefur ekki staðið á að hækka hinar erlendu einokun- arvörur. Olíuhringarnir láta greipar sópa um fjármuni íslendinga. 1947 var olíuinnflutningur íslands alls 103 þús smálestir og verð- mætið 25 millj. kr. 1952 var innflutningurinn 235 þús smálestir og verðmætið 152 milljónir króna. Þannig hefur arðrán hins erlenda auðvalds verið aukið á ís- lendingum og þjóðinni hrundið aftur á leið niður í þá nýlendu- aðstöðu, sem hún hafði verið í áður. Amerísku auðhringarnir hafa grætt, íslendingar tapað — og hér reiknum við þó ekki allt það fjárhagslega tap, sem þjóðin hefur beðið við að sleppa að framleiða fisk til útflutnings, sem hún gat selt, ef ekki hefðu verið Marshall- samningamir. 3. íslenzk verðmætissköpun hindruð, islenzkt vinnuafl knúið tit verðmætissköpunar handa Ameríkönum. Eitt af því, sem ameríska auðvaldið gerði að skilyrði fyrir Marshall„gjöfunum“, var að ráða fjárfestingu íslendinga. Það upp- lýsti fjárhagsráð svo sem kunnugt er orðið, þegar verið var að berjast á móti kröfum Sósíalistaflokksins um að íslendingar fengju frelsi til þess að byggja yfir sig. Stefna ríkisstjórnarinnar varð því sú að draga úr byggingum hjá íslendingum sjálfum. Ekki var það vegna þess að ekki væri nóg þörf á meira húsnæði. Það vant- aði heldur ekki fé til þess að kaupa byggingarefni né tæki til þess að byggja með og sízt af öllu vinnuafl. En það átti að stöðva það að íslendingar einbeittu sér að því að byggja hús yfir sjálfa sig og, knýja þá til þess að fara að byggja yfir herraþjóðina. Byggingarstarfsemin í Reykjavík er gott dæmi um öfugþróun- ina, sem valdhafarnir skapa í þessum málum:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.