Réttur


Réttur - 01.01.1953, Side 11

Réttur - 01.01.1953, Side 11
RÉTTUR 11 fyrirmynd frá Suður-Ameríku og kalla það auðvitað „lýðræði" En þeir óttast þá uppreisn þjóðarinnar gegn íslenzkum yfirstéttar- her, sem þegar er hafin, og birtist í samþykktum hvers einasta íslenzks félags gegn hernum, ef það fær að greiða atkvæði frjálst. Ameríska kúgunarvaldið á íslandi skipuleggur njósnakerfi, sem gerir fyrirmæli danska kúgunarvaldsins til Trampe greifa um að komast eftir skoðun embættismanna á íslandi á stefnu stjórnar- innar að broslegum barnaskap — ef borin er saman. Nú heimta bandarísk yfirvöld á íslandi og embættismenn þeirra skriflegar skýrslur um skoðanir hvers verkamanns, — í nafni skoðanafrels- isins. Og þessi vesalmenni halda að þeir beygi þjóð Ingjaldar í Hergilsey, þjóð Illuga í Drangey, með þessháttar skipulagningu flugumennsku og varmennsku. Ameríska kúgunarvaldið er að reyna að sýkja og spilla íslenzku þjóðinni. Hin smekklausa, lítilsiglda auðmannastétt Bandaríkj- anna lætur leigða áróðursmenn sína vinna að því að draga þjóð vora, eina smekkvísustu bókmenntaþjóð veraldar, niður á andlega ömurlegt ómenningarstig amerískra auðdrottna. Erindrekar Banda- ríkjanna á íslandi knýja það fram að hér séu sýndar siðspillandi og smekkspillandi amerískar kvikmyndir. Lög íslands eru brotin til þess að reyna að æra íslendinga með amerísku útvarpi, meðan ekki er alveg búið að útrýma allri íslenzkri hugsun úr ríkisútvarp- inu. Með þrælameðferð, mútum og harðstjórn á víxl, er reynt að píska undirgefnina, — þann löst, sem fjarskyldastur hefur verið íslenzku eðli, — inn í sál allra, sem komast í tæri við ameríska kúgunarvaldið. Lífshamingja hundraða íslenzkra kvenna hefur þegar verið eyðilögð í spillingu þess árásarhers, sem 43 þingmenn kölluðu inn í landið að boði amerísks auðvalds. Stefna hins ameríska kúgunarvalds og íslenzkra erindreka þess er að siðspilla, lítillækka, forheimskva svo íslenzku þjóðina að hún í auðmýkt og hræðslu ofurselji því land sitt og sjálfa sig til fram- búðar. Eins og erindrekar danskra kúgara notuðu óttann við ímyndað helvíti til þess að hræða fákunnandi, táplitlar sálir 17. og 18. aldar til eilífrar undirgefni og þrælsótta við erlent kúgunar- vald, svo beita nú Ameríkanar og erindrekar þeirra bábilju rússa- grýlunnar til þess að hræða andlega ístöðulítið fólk til undirlægju- háttar við amerískt auðvald. ★ ★ ★ En allt mun koma fyrir ekki. Öll áróðursvél Ameríkana vinnur fyrir gíg.

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.