Réttur


Réttur - 01.01.1953, Side 34

Réttur - 01.01.1953, Side 34
34 RETTUR Frumvarp þetta fékk þá afgreiðslu á þinginu, að því var vísað til Nýbyggingarráðs, er þá var nýlega stofnað. Sýndi það sig sem fyrr, að ekki var hægt lengur að ganga framhjá tillögum Sósíal- istaflokksins, enda hjálpaði hin knýjandi þörf til að reka á eftir breytingum á þessum málum. Nýbyggingarráð tók málið til ýtarlegrar athugunar, og urðu niðurstöður þess mjög hinar sömu. Það skilaði að vísu frumvarpi með nýju nafni, þ. e. frumvarpi til laga um „landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum", í ýmsum atriðum breytt frá hinu fyrra. En heildarstefnan var nákvæmlega hin sama og öll bygg- ing þess svo lík, að engum sem bar þessi tvö frumv. saman duldist að hér var sama mál á ferðinni. Enda margar greinar samhljóða í báðum. Þetta mál varð að lögum á þingi 1946 og tók gildi 1. júlí 1947. Ennfremur samdi Nýbyggingarráð nýtt frumvarp um breytingu á lögum um Ræktunarsjóð, er náði samþykki á fyrri hluta árs 1947 og tók gildi um leið og hið fyrrnefnda. Þeir sem bezt fylgdust með og tóku þátt í gangi þessara mála vita vel, að það var fyrst og fremst fyrir ákveðna baráttu Sósíal- istaflokksins, að þau komust svo heil í höfn. En þýðingu þeirra verður bezt lýst með því að lýsa þeim framkvæmdum sem unnar hafa verið samkvæmt ákvæðum þeirra, þau tæp sex ár, er þau hafa verið í gildi. II. kafli laganna fjallar um landnám ríkisins, þar sem gert er ráð fyrir að undirbúin sé ræktun lands, þar sem stofnuð verði byggðahverfi, einstök býli eða meiri háttar ræktunarframkvæmdir hafnar við kauptún og kaupstaði. Er ráð fyrir gert að landið verði ræst fram, girt, lagðir vegir, sem tengdir verða aðalvegum nærliggjandi byggða, og lagðar aðalæðar til vatnsleiðslu og byggð- in skipulögð. Samkvæmt þessum ákvæðum, hefur verið hafizt handa um slíkar framkvæmdir í átta héruðum landsins. Eru það þessir staðir: Ölfushreppur í Árnessýslu. Þinganes í Austur-Skaftafellssýslu. Hvolsvöllur í Rangárvallasýslu. Víðimýri og Lýtingsstaðahreppur í Skagafjarðarsýslu. Skinnastaðir í Austur-Húnavatnssýslu. Reykhólar í Barðastrandasýslu. Ljósavatnshreppur í Suður-Þingeyjarsýslu. Auðkúla í Austur-Húnavatnssýslu. Á þessum stöðum öllum hafa verið lagðir 59.483 m. af girð-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.