Réttur


Réttur - 01.01.1953, Side 64

Réttur - 01.01.1953, Side 64
64 RÉTTUR heimsmarkaðar þannig mikilvægasta afleiðing siðari heimsstyrjald- arinnar. Sem kunnugt er voru Sovétríkin bandamenn Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands í styrjöldinni. Þar með var það sann- að, er Stalín og aðrir forystumenn Sovétríkjanna hafa hvað eftir annað haldið fram, að tvö efnahagskerfi geti verið við líði í veröldinni á sama tíma og góð samvinna og samskipti þeirra í milli haldizt. Það hefði verið til mikilla hagsbóta bæði fyrir sósíalistisku ríkin og hin kapítalistisku, að samvinnan frá styrj- aldarárunum hefði haldið áfram, m. ö. o. að góð skipti hefðu getað orðið á milli hinna tveggja heimsmarkaða. Forystumenn hinna fyrrnefndu ríkja vildu óðfúsir slíka samvinnu. Valdamenn Banda- ríkjanna voru hinsvegar á öndverðri skoðun og þeim fylgdu að málum hin önnur auðvaldsríki. Undir forystu Bandaríkjanna var hafin viðskiptastyrjöld við sósíalistisku ríkin. Tilgangurinn var auðvitað sá að kyrkja þegar í upphafi hina sósíalistisku uppbyggingu. Bandaríkjunum hefur ekki orðið kápan úr því klæðinu. Þvert á móti hefur þessi við- skiptastyrjöld styrkt mjög efnahagslega samvinnu hinna sósíal- istisku ríkja, en jafnframt dregið mjög úr mætti auðvaldsríkjanna. Með viðskiptastyrjöld sinni stuðluðu auðvaldsríkin þannig að því að markaðirnir einangruðust hvor frá öðrum, en það hefur orðið til þess, eins og síðar mun að komið, að jafnframt því að síðari heimsstyrjöldin var bein afleiðing hinnar almennu kreppu kapítalismans, þá hefur þessi sama styrjöld stórlega magnað þessa sömu almennu kreppu. III. Hinn nýi heimsmarkaður, sem komið hefur til sögunnar, saman- stendur af Sovétríkjunum, Kínaveldi, Póllandi, Tékkóslóvakiu, Ungverjalandi, Búlgaríu, Rúmeníu, Albaníu, austur-þýzka lýðveld- inu, norður-Kóreu og mongólska lýðveldinu. Þessi ríki ná yfir fjórða hlutann af^yfirborði jarðarinnar og þar býr þriðjungur alls mannkynsins. Öll þessi ríki hafa þjóðnýtt mestan hlutann af fram- leiðslutækjum sínum og byggja þjóðarbúskapinn á fyrirfram gerð- um áætlunum. Takmark þessa þjóðarbúskapar er að fullnægja sem mest má verða efnalegum og andlegum þörfum sérhvers þjóð- félagsþegns. Efnahagsþróunin í kapítalistisku ríkjunum annarsvegar og í sós- íalistisku ríkjunum hinsvegar hefur verið með mjög ólíkum hætti,

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.