Réttur - 01.01.1953, Blaðsíða 79
RETTUR
79
Árið 1946 er lokið við byggingu 634 íbúða í Reykjavík (208
þús. rúmmetra). /
1951 er hinsvegar aðeins lokið við byggingu 282 íbúða í Reykja-
vík (93 þús. rúmmetra).
Það voru betri skilyrði til þess að koma upp 7—800 íbúðum í
Reykjavík 1951 en að koma upp 634 íbúðum 1946. Minkun íbúða-
bygginganna er beint þjóðhagslegt tap. Ef menn vilja giska á hvað
það væri í peningum mætti t. d. reikna með 150 þús. kr. verðmæti á
íbúð bæði árin og er þá tapið 53 milljónir króna árið 1951 á því
að verða, samkvæmt stefnu ameríska auðvaldsins og leppa þess,
að byggja svo miklu minna en hægt var. Þannig er peningalegt tap
aðeins á því, sem minna er byggt í Reykjavík einni á einu ári,
50—60 milljónir króna.
Það fer fljótt að koma tapið á því að taka á móti Marshallgjöf-
unum og fylgja skilyrðum þeirra. — Og þegar búið er þannig að
knýja íslendinga með Marshall-fjötrunum til að draga úr bygg-
ingum fyrir sjálfa sig um allt land, þá eru 2—3000 íslendingar
settir í að byggja handa Ameríkönum. Fyrst er skapað atvinnu-
leysi með Marshall-fjötrunum, svo kemur Ameríkaninn sem bjarg-
vættur og segir: Ég skal láta ykkur fá vinnu. Og þannig er hið
dýrmæta islenzka vinnuafl þrælkað og arðrænt við að hýsa ísland
handa innrásarher.
4. En gáfu Ameríkanar okkur ekki Sogsvirkjunina?
Þá er það eitt, sem betliblöð hernámsflokkanna aldrei gleyma að
knékrúpa Ameríkönum fyrir og lofa hástöfum: „Þeir gáfu okkur
Sogsvirkjunina og Laxárvirkjunina, en ótætis kommúnistarnir
vildu hindra hvorttveggja með því að neita blessuðum Marshall-
gjöfunum“, — þetta er tónninn í hernámsblöðunum.
Við skulum nú athuga ýtarlega staðreyndirnar í þessum málum,
því hér er verið að reyna að skapa eina „hetjusöguna“ um Marshall,
til þess að lítillækka þjóð vora. Ég ræði Sogsvirkjunina, af því ég
er því máli kunnugur.
í fyrsta lagi: Ameríkanamir hafa ekki gefið rafmagnsnotendun-
um, sem nota Sbgsvirkjunina og aðrar virkjanir, einn eyri, heldur
þvert á móti gert virkjanimar og rafmagnið úr þeim dýrara
en ella hefði orðið. Áætlun sú, sem gerð var um Sogsvirkjunina
nýju fyrir gengislækkun, gerði ráð fyrir að allur kostnaður við
hana, að meðtalinni háspennulínu og aðalspennistöð við Elliðaárn-
ar, yrði 61j4 millj. króna. Þar af átti innlendur kostnaður að vera
34 milljónir króna og erlendur kostnaður 27y2 milljón króna. (í