Réttur


Réttur - 01.01.1953, Page 80

Réttur - 01.01.1953, Page 80
80 RÉTTUR þessum kostnaði eru 8 milljónir kr. vextir og bankakostnaður). — En svo fyrirskipaði ameríska auðvaldið gengislækkun á íslandi og ríkisstjómin hlýddi 20. marz 1950 og þarmeð hækkar áætlunar- kostnaðurinn upp í 1G5 milljónir króna, útlendi kostnaðurinn þar af milli 90 og 100 milljónir. Og rafmagnsverðið miðast fyrst og fremst við þennan stofnkostnað, sem verður svona hár í ísl. krón- um af því Ameríkanar ráða genginu. Rafmagnsnotendur verða því að greiða miklu hærra verð en þeir ella hefðu þurft fyrir rafmagn- ið, af því amerískt auðvald fjrrirskipar nú verðlagsstefnu þá, sem ríkja skal á íslandi. Að svo miklu leyti sem Sogsvirkjunin er byggð fyrir lán úr Mótvirðissjóðnum, sjóð, sem íslendingar sjálfir leggja fram en borga ameríska sendiráðinu 5% „þjórfé" úr, þá fá ís- lendingar ekki einu ainni sjáKir að ráða vöxtunum á þeim lánum. Dr. Benjamín Eiríksson viðurkennir að það sé stefna Ameríkana að hafa háa vexti á slíkum lánum. Þessvegna eru þeir 5%%. Með lækkun á gengi íslenzku krónunnar og fyrirskipanir um háa vexti til raforkuveranna, íþyngir ameríska auðvaldið þannig r af magnsnotendunum. í öðru lagi: Þjóðin gat reist þessi orkuver án „aðstoðar“ ame- riska auðvaldsins og hefði f járhagslega séð getað það ódýrar en nú varð. Það er nauðsynlegt að rifja vel upp forsögu þessa máls, ef ósann- indin um nauðsyn ölmusanna eiga ekki að festast í þjóðinni. Þegar samningar stóðu yfir um nýja ríkisstjórn í nóvember 1946, var eitt af því, sem Sósíalistaflokkurinn setti fram sem tillögur um áframhald nýsköpunar atvinnulífsins það, að flýtt yrði svo sem verða mætti virkjununum við Sog og Laxá, „ef verða mætti að virkjunum þessum yrði lokið árin 1948—49“. Var þetta einn þáttur í veigamiklum tillögum flokksins um stórframkvæmdir í raforku- málum landsins. • Það var auðvelt mál að koma þessum virkjunum upp á árunum 1948—50, ef stjórnarvöldin vildu einbeita kröftum þjóðarinnar að því. Eins og sagt var frá áðan, þá þurfti með þáverandi gengi 27% milljón króna í erlendri mynt til Sogsvirkjunarinnar, eða hérumbil 10 milljónir fyrsta árið, 11 miljónir annað og tæpar 8 milljónir króna þriðja árið. Árið 1948 var útflutningur íslands tæpar 400 milljónir króna í þá verandi gengi og heldur minna næst„ en engum manni getur blandazt hugur um að hægt var að spara það sem þurfti til virkjananna af útlendum gjaldeyri, ef vilji var til. Það fé, sem þurfti innanlands var lítill vandi að útvega, ef skynsamleg lánsfjárpólitík var rekin.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.