Réttur


Réttur - 01.01.1953, Side 83

Réttur - 01.01.1953, Side 83
RÉTTUR 83 Samt gæti þetta verið viðunandi fyrir Sogsvirkjunina og raf- magnsnotendur, ef tryggt væri að virkjunum yrði hraðað svo mikið að örugt væri, að ekki þyrfti aftur að taka til stöðugs reksturs olíustöðvarinnar eða til skömmtunar. Þess vegna lagði ég til í stjórn Sogsvirkjunarinnar að stjórn su gæti sagt samningnum við áburðarverksmiðjuna upp með þriggja ára fyrirvara, ef henni þætti tvísýnt að nýjar virkjanir yrðu nógu fljótt til. Stóð ég einn með þeirri tillögu og greiddi þá atkvæði gegn samþykkt samningsins, er hún hafði verið felld. En samning- urinn skuldbindur Sogsvirkjunina til 15 ára. — Síðan flutti ég tillöguna á Alþingi um virkjun Efri fossanna við Sogið, sem lika var felld. Auðséð hefur verið á öllu að ríkisstjórnin hefur viljað knýja fram samningana, svo hagstæðir sem þeir eru áburðarvehksmiðj- unni og svo mikið öryggisleysi, sem í þeim felst bæði fyrir raf- magnsnotendur í Reykjavik og sunnan lands og fyrir Sogsvirkj- unina sem fyrirtæki. Er það nú bara lofsverður áhugi fyrir áburðarframleiðslu handa iandbúnaðinum, sem hér kemur fram hjá ríkisstjóminni, eða býr eitthvað meira á bak við, jafnvel vissir sérhagsmunir amerísks auðvalds og handgenginna manna þess hér heima. Við skulum rifja upp nokkur atriði í sambandi við sögu áburð- arverksmiðjunnar, sem ég rakti nokkur í þingræðum um það mál s.l. vetur, — einkum þá með tilliti til þess að sýna fram á sér- stakan áhuga amerískra manna á því máli. 1. Við samþykkt núgildandi laga um áburðarverksmiðju, sem upphaflega voru lögð fram af ríkisstjórninni í þeirri mynd að hún væri ríkiseign, leggur Björn Ólafsson, einn handgengnasti maður ameríska auðvaldsins, til á síðasta stigi málsins að verk- smiðjan skuh „rekin sem hlutafélag“, ef hægt sé að fá einkaaðila til að leggja fram 4 milj. kr. í hlutafé af 10 milljóna hlutafó alls og skuli þá ríkið eiga 6 milljónir. Þetta fæst samþykkt á síðustg dögum þingsins gegn atkvæðum Sósíalistaflokksins. 2. Á næsta þingi lýsa ráðherrar Framsóknar því yfir, vegna ádeilna okkar sósíalista á það óreiðuástand, sem lögin um áburð- arverksmiðjuna komust í við þessa breytingu, að hlutafélagið sé eigandi verksmlðjunnar. Við sósialistar mótmæltum þessu harð- lega. Áburðarverksmiðjan mun kosta upp undir 125 milljónir króna (minnst 104) og ef hlutafélag með 10 milljón króna hlutafé á að eiga hana, þá sér hver maður hvílíka eign er verið að gefa hlut-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.