Réttur - 01.11.1962, Page 37
R É T T U ií
3Ö9
þeim sjaldgæfu leiðtogum sem rísa af spjöldum sögunnar á hinum
mestu örlagatímum. Hann er slíkur ræðumaður að ég hef aldrei
heyrt neinn þvílíkan; þegar landsmenn þyrpast kringum hann í
hundruðum þúsunda er raunar eins og menn séu ekki að hlusta á
ræðu, lieldur sé fólk að hlýða á sjálft sig, sameiginlega rödd sína,
eins og Fidel Castro hafi leyst úr læðingi það sem býr í hugskoti
hvers manns og fundið því réttan húning. Hópurinn litli sem Fidel
Castro hafði í kringum sig í upphafi er nú orðinn sjö milljónir, og
staða Kúbubúa er í dag hliðstæð því þegar tólfmenningarnir stóðu
í Sierrafjöllum andspænis 50 þúsunda manna her. Tólfmenning-
arnir sigruðu vegna þess að fólkið í landinu reis upp til stuðnings
þeim, og á sama hátt er sigur Kúbu nú við það bundinn að fólkið
í heiminum rísi upp til stuðnings smáþjóðinni.
Það eru andlega forhertir menn og kalnir á hjarta sem finna
ekki að þeir eru hluti af eyþjóðinni í Karíbahafi, sem um langt
skeið hefur verið umlukin morðtólum á alla vegu og getað búizt
við tortímingunni á hverri stundu. Orlög Kúbubúa eru örlög okkar
allra. Þar verður úr því skorið hvort langþjáð alþýða á að hafa
rétt til að rísa gegn kúgurum sínum og leita frelsis, þekkingar og
lífshamingju. Þar verður úr því skorið hvort smáþjóð á að hafa
frelsi til að ráða málum sínum sjálf. I átökunum um Kúbu kristall-
ast framlíð mannkynsins: stríð eða friður, morgunroði nýrrar
framþróunar eða svartnætti gamallar kúgunar. Urslitin eru komin
undir viðbrögðum okkar allra, einmitt viðbrögðum þeirra smáu
sem leiddu byllinguna til sigurs á Kúbu. Um allan heim hljóma
nú kjörorð byltingarinnar á Kúbu og bíða eftir andsvari: Patria
o muerte. Venceremos. Föðurland eða dauði. Við munum sigra.