Réttur


Réttur - 01.11.1962, Síða 40

Réttur - 01.11.1962, Síða 40
312 R E T T U R hins mikla fjölda frumstæðra bænda; og eigi þjóðfclagsbylting í þessum löndum að bera varanlegan árangur, er það eitt af frum- skilyrðunum, að hér verði bót ráðin á sem fyrst. Þetta vandamál er sameiginlegt öllum Asíu- og Afríkulöndum; en í Kína var, vegna sérkenna byltingarinnar þar, hægt að leysa það á allt annan hátl en annars staðar. Forystumenn kínverskra kommúnista gerðu sér frá upphafi grein fyrir mikilvægi þess og reyndu að finna leiðir til úrlausnar; og enda þótt þær leiðir hafi stundum reynzt rangar, liær vitanlega ekki nokkurri átt að tala um „ofsóknarherferð“ gegn menntamönnum. Annað atriði, sem lá til grundvallar „stökkinu mikla“, var sú áherzla, sem kínverskir kommúnistar liafa alltaf lagt á félagslegar umbreytingar sem beinan þátt í þróun framleiðsluaflanna. Bæði kínverskar erfðir og reynsla byltingarinnar sjálfrar hafa leitt ílokk- inn til að leggja höfuðáherzlu á hinn mannlega þátt framleiðslunn- ar, samslillta starfsorku fjöldans, vakta af hyltingunni, þátt mann- legs vilja í að yfirstíga hlutlæga erfiðleika, og afkasta undir vissum kringumstæðum jafnvel meira en því, sem annars væri mögulegt. Allt þetta á reyndar sínar rætur í kenningu marxismans, en við kín- verskar aðstæður hlaut það mjög að styrkjast og sér í lagi árin 1957—58. Þessar eru þá hinar mannlegu og ídeólógisku forsendur „stökks- ins mikla“; en til greina koma einnig mörg fyrirbæri í efnahagslíf- inu, sem bentu til þess, að umfangsmikil breyting væri í aðsigi. Sennilega hafa á síðari árum annarrar fimm ára áætlunarinnar átt sér stað margar minniháttar breytingar, sem fyrst um sinn komu ekki fram á yfirborðinu, en sköpuðu þó grundvöll að róttækari breytingum; hér er einkum um að ræða hina miklu útvíkkun áveitu- kerfisins. Það er að vísu erfitt, enn sem komið er, að gera sér ná- kvæma grein fyrir þýðingu þessara hluta, en efalaust mál er, að allar upplýsingar um kínverskt efnahagslíf á fyrstu mánuðum ársins 1958 sýndu, að farið var langt fram úr áætlun í öllum grundvallar- atriðum og þar af leiðandi trufluð samhæfing hinna ýmsu þátta þ j óðarbúskaparins. Allt þetta hafði sín álirif á þær ákvarðanir, sem teknar voru á átt- unda þingi kínverskra kommúnista 5.—23. maí 1958, (þar var gengið úl frá ýtarlegri skýrslu Liu Shao-chis um innanlandsástandið, en ugglaust áltu sér líka stað ákafar umræður og deilur innan flokks- ins) um að „stíga skref fram á við í uppbyggingu sósíalismans og

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.