Réttur - 01.05.1965, Síða 53
K E T T U K
117
vald í stjórnmálum landsins og liafa fórnað miklu í frelsisbarátlu
Sýrlands.
Auðmenn reyna að hræða þessar millistéttir á því að þjóðnýta
cigi eignir þeirra. Slíkt kemur ekki til mála og það verðum við
óhikað að segja, því það iná ekki hrinda þessum aðilum i faðm
afturhalds og auðvalds.
*
Við kommúnislar í Sýrlandi berjumst fyrir sósíalisma í landi
\oru. Við viljum að hinn vinnandi fjöldi fái að njóta ávaxtanna af
vinnu sinni. „Við viljum“ — eins og sýrlenzkt máltæki segir, —
„borða vínberin, en ekki drepa garðvörðinn."
Við krefjumst lýðræðislegra réttinda fyrir verkamenn, bændur,
menntamenn og öll framfaraöfl. Við viljum fá ríkisstjórn, sem styðst
við framfaraöflin. Þótt aðalauðvaldinu sé bægt frá völdum og aðal-
i'ígi þess í efnahagslífinu af því tekin, þá er ekki þar með búið að
útrýma auðvaldsskipulaginu og koma á sósíalisma.
Byltingarmenn í Sýrlandi standa frammi fyrir miklum vanda-
málum. Lausn þeirra heimtar ekki aðeins hugrekki og einbeitni,
heldur og þolinmæði og sveigjanleik. En til þess að leysa verkefnin
þarf að gefa hinum skapandi mætti fjöldans frelsi til þróunar. Þjóð-
frelsishreyfing Araba nú á tímum þarf á þeirri dýpt og breidd að
halda, sem þarmeð myndi fást. Og það á við innbyrðis í hverju
Arabalandi og í öllum hinum arabiska heimi.