Réttur


Réttur - 01.07.1972, Page 52

Réttur - 01.07.1972, Page 52
Annað einkennl nýkapítalískrar tegundar er það, að efnahagslegt vald hefur færzt æ meir frá atvinnurekendum í framleiðsluatvinnuvegum, sem meðal annars verðbólgan hefur gert fjárhagslega veikburða, til valdastofnana á vegum ríkisins, svo sem ýmiss konar nefnda. Samfléttaðir við slikar stofnanir eru fjármálahópar íslenzka auðvaldsins I nokkrum öðrum fyrirtækjum, einkum á kaupsýslu- sviði, svo sem olíufélaga, tryggingarfélaga, skipa- og flugfélaga. Áhrifamiklar eru ýmsar opinberar stofnanir eða ríkisfyrirtæki sem hafa orðið tiltölu- lega sjálfstæð, og loks eru erlend auðfélög komin til skjalanna. Þau hafa stungið sér hér niður i sérstöku boði íslenzkrar borgarastéttar, og er mik- il hætta á, að þau — vegna undirlægjuháttar inn- lendrar borgarastéttar — fái hér meiri áhrif en efni standa til. Þetta er valdakerfi íslenzkrar borgarastéttar á efnahagssviðinu. Það byggist á innbyrðis samstöðu tiltölulega sjálfstæðra hópa með samfléttaða hags- muni. Þeir hópar sem sterkastir eru, eru nátengd- ir Sjálfstæðisflokknum, og reyna að skara eld að sinni köku í skjóli hans. Auðvaldsskipulagið er sjaldnast laust við nokkur spillingareinkenni. Miðað við hagstæðustu forsendur getur veldi kapítalista vissulega staðizt án þess að þeir þurfi að grípa til tvöfalds siðgæð- is eða að brjóta sín eigin lög og reglur. En æði oft og víða fer svo að nokkur hluti borgarastétt- arinnar fær örðuglega haldið efnahagslegri aðstöðu sinni nema með bolabrögðum á bak við Ijós lag- anna. Svo hefur reynzt hér á landi. Mikið kveður að lögbrotum hjá borgarastéttinni, einkum skatt- svikum og brotum gegn allskyns lagareglum um efnahagsstarfsemi svo sem gjaldeyrisreglum. En ekki er vafi á því að margir máttarstólpar þjóð- félagsins mundu ramba á barmi gjaldþrots, ef fyllstu lögum yrði komið yfir þá. Og raunin er sú, að sárafá slik mál koma til réttarmeðferðar, þótt almannarómur telji lögbrotin legíó. Þetta veldur því, að siðgæðisþrek allrar alþýðu varðandi það að fara eftir þeim reglum sem almannahagur býð- ur, slævist mjög, og er það pólitískri stöðu borg- arastéttarinnar til hagsbóta. Eitt af kapítalískum sérkennum þjóðarbúskap- arins er hin ótrygga rekstrarafkoma sjávarútvegs- ins, en hann geldur þess að vera meginatvinnu- vegurinn til framleiðslu útflutningsafurða. Verð- bólgan kemur hart niður á honum, þar eð hann getur ekki velt af sér verðlagshækkunum í stíl við aðrar atvinnu- og þjónustugreinar. öðru hverju verður því að breyta gengi gjaldmiðilsins í þeim yfirlýsta tilgangi að flytja verðmæti frá innfiutn- ingnum til útflutningsins. Gengisfelling er þó yf- irleitt skammgóður vermir, þar sem sjávarút- vegurinn þarfnast töluverðs innflutts varnings til sinnar starfsemi og áframhaldandi verðbólga gerir hana auk þess gagnslausa til frambúðar. Innflytj- endur velta verðhækkun erlends varnings venju- lega viðstöðulaust yfir á innanlandsmarkaðinn, og þannig kemur gengislækkun niður á alþýðu manna sem snögg og þungbær kaupmáttarrýrnun. Nauðsyn á kauphækkunum og öðrum leiðrétting- um á lífskjörum verður því mjög brýn fyrst á eft- ir gengislækkun, og er það undir pólitískri af- stöðu og stéttarlegum styrk verkalýðshreyfingarinn- ar komið, hve langur tími líður unz fyrra lífskjara- stigi er aftur náð. I millitíðinni hefur orðið í hag- kerfinu stórkostleg verðmætatilfærsla borgara- stéttinni í hag, en hitt er aftur á móti undir hælinn lagt, hve sjávarútvegurinn fær mikið I sinn hlut. Auðvaldsþróunin á Islandi hefur orðið á þá lund, að hagsveiflur markast hér fyrst og fremst af pólitískum ákvörðunum um gengislækkun krón- unnar, en hver slik hagsveifla treystir hag og að- stöðu þess hluta borgarastéttarinnar sem fæst við viðskipti og þjónustu meir en hins hlutans sem fæst við frumframleiðslu og úrvinnslu úr afurð- um hennar. Kapítalisminn hefur mismunað mjög landsmönn- um eftir búsetu. Heil byggðarlög hefur auðvalds- þróunin lagt í auðn, en safnað fólki í byggðirnar kringum Faxaflóa. Vöxtur byggða og afkoma fólks I sjávarþorpum út um land er í beinum tengslum við sjávarútveginn og viðgang hans og hafa þau því átt erfitt uppdráttar, en viðskipta- og þjónustu- starfsemi blómgast kringum höfuðstöðvar auð- valdsins, Reykjavik. Þar er innflutningsverzlunin svo að segja öll, miðstöð stjórnsýslu og banka- kerfis, ennfremur helztu menntastofnanir o.s.frv., Þar er yfirbygging þjóðfélagsins og þar á valda- stéttin heima. En þar er jafnframt verkalýðsstétt- in öflugust og átök stéttanna því hörðust. Hlutverk ríkisvaldsins í síðkapítalísku þjóðfó- lagi er að skapa borgarastéttinni drottnunar- og arðránsskilyrði. Þetta gerist annars vegar með hinu pólitíska valdi yfir ýmsum nauðsynlegum stofnun- um, svo sem ráðuneytum, bönkum o.s.frv. Hins vegar sér rikið um ýmsar verðmætistilfærslur til þess að hagkerfið gangi, svo sem varðandi sjávar- 180

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.