Réttur


Réttur - 01.10.1973, Qupperneq 12

Réttur - 01.10.1973, Qupperneq 12
Málverk Kristínar Jónsdóttur af konum að þvo i laugunum í Reykjavík. karlmanna einna, þá kom sér vel að geta gripið til ódýrs vinnuafls kvenna og barna. Sama varð upp á teningnum í báðum heimsstyrjöldunum, þeg- ar hergagnaframleiðslan krafðist mikils mannafia og stór hluti vinnufærra karla var á vígvöllunum. I atvinnuleysi millistríðsáranna var Ijómi húsmóð- urstarfsins aftur tendraður. Konurnar voru flæmdar burt úr atvinnulífinu og þeim sagt, að ó heimilinu væri þeirra vettvangur. Þannig mátti dylja atvinnu- leysi þeirra og atvinnuleysisbætur spöruðust. Al- kunn eru slagorð Hitlers I viðleitni hans til að upp- ræta atvinnuleysl í Þýskalandi. Konur voru heila- þvegnar með orðunum „Kinder, Klrche und Kúche"1) og giftum konum bannað að taka vinnu, þar sem karlmenn gengju atvinnulausir. Atvinnu- leysið hér á landi í lok sjöunda tugs þessarar aldar kom án efa harðast niður á konum, unglingum og eldra fólki. I fiskiðnaðinum hér á landi eru konur vara- vinnuaflið. Þær eru lausráðinn starfskraftur, sem hægt er að kalla ó, þegar með þarf, en látnar sitja heima, þegar hráefni skortir. Yfirvöld virðast — eins og atvinnurekendur — ‘) „Krakkar, kirkja og kokkhús". 220

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.