Réttur


Réttur - 01.10.1973, Blaðsíða 32

Réttur - 01.10.1973, Blaðsíða 32
Það er ekki nóg, að konurnar komi út af heimil- unum til vinnu, þær þurfa að koma innan um annað fólk, venja sig á að rökræða og nema. Þær þurfa að viðurkenna þá stétt sem þær eru í, en ekki grípa til ráða millistéttarkvennanna, sem gefa sér starfsheitið ,,frú“, þýði starfsheiti þeirra á vinnu- markaðnum, að þær lækki í stétt miðað við að teljast til stéttar eiginmannsins. Stéttarleg nið- urlæging er þeim þyrnir í augum. Meðan konur hafa enn stóran þátt uppeldismál- anna i sinum höndum, ættu þær að beita áhrifum sínum til breyttra viðhorfa í barnauppeldi, konur í kennarastétt ættu að beita sér fyrir, að mis- munun kynjanna sé t.d. útrýmt úr skólabókunum.1) Krafa okkar er, að vinstrisinnuð ríkisstjórn styðji verkakonur í landinu, en ekki þá sem arðræna þær,2) beri málefni fólksins í landinu fyrir brjósti, en ekki auðvaldsins. Að lokum þetta: Aðalatriðið er í rauninni ekki, hvaða kyni maður tilheyrir, heidur hvaða stétt, frels- un kvenna er nátengd frelsun verkalýðsins undan oki þeirra, sem arðræna hann. Konur ná jafnrétti, verði stéttlaust þjóðfélag einhvern tíma að veru- leika. ‘) A.m.k. ein kennslubók er nú i endurútgáfu, þar sem slíkar breytingar hafa verið gerðar, en það er Kennslubók í vélritun eftir Þórunni Felixdóttur. 2) Ríkisstjórnin útvegaði fjármagn til að byggja upp og endurbyggja frystihús til að mæta kröfum bandarískra kaupenda. HELSTU HEIMILDIR: Bankablaðið, 1.—2. tbl. 1970. Simone de Beauvoir: The Second Sex. Einkaritarinn, útg. Stjórnunarfélag Islands. Erla Hatlemark: Ævintýraljóminn farinn að fölna? (viðtal), Þjóðviljinn, 3. 8. 1973. Forvitinn rauð, útg. Rauðsokkahreyfingin, 2. bl., maí 1973. Frelsun konunnar, félagshagfræðin, Neisti, 1. tbl. 1970. Gerður G. Óskarsdóttir o. fl.: Til bæjarstjórnar Kópavogs, Samvinnan, nr. 5, 1971. Germaine Greer: The Female Eunuch, London 1971. 240 Hjúkrunarfélag íslands 50 ára, viðtal, Ásgarður, 3. tbl. 1969. Könnun gerð á aðstöðu útivinnandi kvenna í sex aðildarrikjum EBE, Morgunblaðið, 11.3. 1973. Kvindeundertrykkelsens specifikke Karakter under Kapitalismen. Nordisk Sommeruniversitet. Köbenhavn 1973. Launarannsóknarhópur Rauðsokka: Eru konur hýru- dregnar?, Samvinnan, nr. 5, 1971. Hanne Reintoft: Kvinden í klassesamfundet, Köben- havn 1972. Stigsetning starfsheita, Ásgarður, 2. tbl. 1971. Svava Jakobsdóttir: Lág laun kvenna undirrót mis- réttis, Þjóðviljinn, 2. 11. 1973.

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.