Réttur - 01.10.1973, Blaðsíða 42
séu í mörgum tilfellum óhagstæð. Á
meðan við erum háðir þeim mörkuð-
um, getum við áuðvitað ekki haft full-
komið verslunarfrelsi, en verðum að
leitast við að hagnýta þessi viðskipti
eins vel og kosmr er."
Strax og freðfiskmarkaðurinn óx í Banda-
ríkjunum, kom upp tilhneiging hjá afturhald-
inu til þess að brjóta niður viðskiptin við
Sovétríkin og koma olíusölunni afmr í klærn-
ar á engilsaxnesku olíuhringunum. Fulltrúi
þess firma, sem er önnur hönd Standard Oil,
var fenginn hingað til lands sem „óhlut-
drægur" aðili að sögn Morgunblaðsins, til
þess að leggja á ráðin um að koma hér upp
olíuhreinsunarstöð, sem olíuhringarnir nátt-
úrlega átm að fá tökin á, og þannig væri
loksins hægt að ná því langþráða marki aft-
urhaldsins að eyðileggja viðskiptin við Sov-
étríkin og gera Island algerlega háð auð-
hringum Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu.
Þessi fyrirætlun tókst ekki. En viðreisnar-
stjórninni tókst að koma viðskiptunum við
Sovétríkin úr ca. 20% niður í 7—8% og
heildarviðskiptunum við sósíalistisku löndin
úr 30% niður í 10—11%. Henni tókst líka
að koma á atvinnuleysi og landflótta og
hækka dollarann úr rúmum 16 krónum upp
í 88 kr.
Afmrhaldsöflunum á íslandi, er reka hér
erindi erlendu auðhringanna, tókst ekki að
skera endanlega á líftaugina , eyðileggja þann
bakhjarl, sem viðskiptin við Sovétríkin reynd-
ust Islandi í sjálfstæðisbarátm vorri. I krafti
þeirra viðskipta tókst 1953 að brjóta bann
enska auðvaldsins á sölu íslensks fisks og þar
með bjarga 4 mílna landhelginni. í krafti
þeirra viðskipta tókst 1956 að selja 30 þús-
und smálestir freðfisks til Sovétríkjanna, þeg-
ar sölukreppa vofði yfir hér og ýmis frysti-
hús hætm móttöku fiskjar. Og í krafti þess-
ara viðskipta stendur Island nú best að vígi
allra vestrænna Evrópulanda hvað olíu snert-
ir, þegar Arabar taka að hefna sín á olíu-
hringum Vesturlanda fyrir áramga auðmýk-
ingu og arðrán.
En þótt afmrhaldsöflunum tækist ekki að
skera á líftaug þá, sem viðskiptin við Sovét-
ríkin eru Islandi, þá er hið blinda hamr enn
hið sama. „Sjálfstæðisflokkurinn" vill ekki
láta tala við Sovétríkin um fiskveiðar hér —
líklega af því þau hafa virt 50 mílna tak-
mörkin eins og þau viðurkenndu 12 mílna
lögsöguna, — en skríður hinsvegar að fómm
Breta og annarra, sem beittu okkur hernaðar-
ofbeldi bæði fyrr og nú. Slíkir em „vinir"
Islands að dómi Ihaldsins, en Sovétríkin og
aðrir, sem virða barátm okkar fyrir lífinu,
fjendur okkar!
Er ekki tími til kominn að þjóðin opni
augu sín fyrir því hvílíkir skaðræðisgripir
J^eir menn em Islandi, sem ala í sífellu á
hinu blinda hatri til Sovétríkjanna, til þess
að ofurselja þjóð vora auðhringum Vesmr-
landa og hernaðarbrölti þeirra?
Ýtarlegar má lesa um efni, sem rædd eru hér,
i eftirfarandi greinum og bókum:
Ásmundur Sigurðsson: Marshallaðstoðin og áhrif
hennar á efnahagsþróun Islandinga. Réttur 1952,
bls. 66—97.
Einar Olgeirsson: Viðskiptin í Austurveg. Réttur
1949, bls. 195—212.
Einar Olgeirsson: Krepputeikn og markaðsöryggi.
Réttur 1972, bls. 16—20.
Gunnar Adler-Karlsson: Vestblokkens ökonom-
iske krigföring, 1947—1967. Pax Forlag. Oslo. 1970
Gunnar Myrdal ritar formála.
250