Réttur - 01.10.1973, Síða 50
eru veik og félagsmál vanþróuð:
þetta hefur t.d. komið I Ijós við
staðsetningu verksmiðja i Frakk-
landi. Á þennan hátt virka fyrir-
íækin undirbjóðandi, og er auðséð
að þessu vopni má auðveldlega
beita til að knésetja verklýðshreyf-
ingu í öðrum löndum, þar sem hún
hefur áður náð miklum árangri.
Svo hafa óþjóðleg fyrirtæki (og
reyndar önnur líka) mikla tilhneig-
ingu til að nota innflutt vinnuafl.
Mönnum hættir mjög til að gleyma
því, að verkalýðurinn hefur náð
öllum sínum réttindum innan nú-
verandi ríkja og hann missir þau
um leið og hann fer yfir landa-
mæri. Verkamaður, sem starfar er-
lendis, hefur kannski viss réttindi
á pappírnum, en í rauninni hefur
hann miklu lægri laun og verri
kjör en „innfæddir" verkamenn i
cama landi. Ef hann reynir hins
vegar að notfæra sér þau réttindi,
sem stjórnarskrá landsins veitir
honum, t.d. málfrelsi, fundafrelsi,
félagafrelsi og verkfallsrétt, til að
berjast fyrir betri kjörum, á hann
á hættu að vera rekinn úr landi
„fyrir að hafa ekki gætt þess hlut-
leysis sem útlendingum ber". Með
því að notfæra sér slíkt vinnuafl
geta óþjóðleg fyrirtæki haldið allri
verkalýðsbaráttu nlðrl.
10 stærstu
Samkvæmt skýrslunni eru tíu
otærstu fyrirtæki í heimi þessi:
Árleg sala í milj. dollara
General Motors (USA) 28.264
Standard Oil (N.J.) (USA) 18.710
Ford Motor (USA) 16.433
Royal Dutch Shell
(Holl., Bretl.) 12.734
General Electric (USA) 9.429
IBM (USA) 8.274
Mobil Oil (USA) 8.243
Chrysler (USA) 7.999
Texaco (USA) 7.529
Unilever (Holl., Bretl.) 7.483
Sjálfvirkni krefst
sósíalisma
Albert Einstein lagði áherzlu á
að ný þróun í ákveðnum fram-
leiðslugreinum, sem hefðu úrslita-
gildi fyrir mannfélagið, kallaði á
yfirstjórn þjóðfélagsins, — og
Norbert Wiener, höfundur raf-
eindafræðinnar, varaði við ægileg-
um afleiðingum sjálfvirkninnar, ef
„frjálst framtak" réði framvegis.
22. marz 1964 sendu ágætir vís-
indamenn, m.a. Myrdal og Pauling
forseta Bandaríkjanna álitsgerð,
þar sem áherzla var á það lögð
að sjálfvirkni væri í algerri mót-
sögn við grundvöll auðvaldsskipu-
lagsins. Sjálfvirkni gerir mögulegt
að framlelða ótakmarkað mann-
kyninu til heilla, en eigna- og
markaðs-skipulagið „er hemill á
takmarkalausum möguleikum sjálf-
virkrar framleiðslu." Wilson, for-
maður enska Verkamannaflokksins
sagði svipað 1963, er hann á-
varpaði ráðstefnu flokksins um
vísindabyltinguna:
„Tækniframfarirnar í höndum
einkaiðnaðar og einkaeignar getur
aðeins leitt til mikils gróða fyrir
fáa, mikillar vinnu fyrir fáa og al-
menns atvinnuleysis fyrir fjöldann.
Ef eigi hefði verið grundvöllur
fyrir sósíalismann áður, hefði sjálf-
virkni skapað hann.“
Franz Marek í „Heimsspeki
heimsbyltingarinnar" (Philo-
sophy of World Revolution
1969.
Fjöldamorð hins opinbera
„Þegar einstaklingur veitir öðr-
um einstakling slíkan áverka að
dauði hlýtst af, þá köllum við
það manndráp; ef banamaðurinn
vissi fyrirfram að áverkinn myndi
leiða til bana, þá köllum við verkn-
að hans morð. En þegar þjóðfé-
lagið kemur hundruðum öreiga i
þá aðstöðu, er leiðir þá óhjá-
kvæmilega til bana, óeðlilegs
dauðdaga fyrir aldur fram, dauða,
sem í raun gerist með samskonar
valdbeitingu og ef sverði eða
kúlu væri beitt; — ef þjóðfélagið
sviftir þá nauðsynlegum lífsskil-
yrðum, setur þá í aðstöðu, sem
þeir geta ekki lifað við; — ef það
neyðir þá með sterkum armi lag-
anna til að lifa í þessari aðstöðu,
unz þann dauða ber að sem hlaut
að leiða af þessari aðstöðu; —
ef það veit fullvel að þessar þús-
undir hljóta að deyja við þessi
skilyrði og lætur samt þessi skil-
yrði halda áfram,-----------þá er
það morð alveg eins og verknaður
einstaklingsins, aðeins launmorð,
— morð, sem enginn getur varizt,
— morð, sem ekki virðist vera
morð, af því maður sér ekki morð-
ingjann, af því allir og enginn, eru
þessi morðingi, af því dauði fórn-
ardýrsins lítur eðlilega út og af
því hann er frekar vanrækslusynd
en ásetningssynd. En þessi dauði
er morð."
Friedrich Engels: I „Lage der
arbeitenden Klasse in Eng-
land“. (Ástand enska verka-
lýðsins) (1845).
Chile mun aftur
tilheyra Chile-búum
„Chile er ekki eitt og einangr-
að í baráttu sinni fyrir frelsuninni.
Með öllum þjóðum heims er
stuðningur við oss. Það hefur
aldrei verið svo víðfeðma sam-
úðarhreyfing um víða veröld og
sú, sem nú styður réttlátan mál-
stað vorn." ....
„Þjóð Chile mun aldrei gleyma
þeirri hjálp, sem henni er nu látln
í té og hún veit að sú aðstoð fer
dagvaxandi." ....
„Chile mun aftur tilheyra Chile-
búum. Þá mun land vort verða
frjálst og fullvalda, njóta frelsis
síns og réttinda. Fyrir þjóð vora
258