Réttur


Réttur - 01.07.1974, Blaðsíða 2

Réttur - 01.07.1974, Blaðsíða 2
að vilja velta öllum afleiðingum af glundroða og óstjórn burgeisastéttarinn- ar á efnahagslífi þjóðarinnar yfir á alþýðu með skerðingu lífskjara almenn- ings, en hrædd er hún enn við að sýna þá hörku, sem slíkar stjórnir eiga í fórum sínum eftir fyrri reynslu alþýðu af þeim. En þótt undirokun og árásir á alþýðu séu aðal slíkra stjórna, þá mun undirgefni og jafnvel uppgjöf gagnvart útlendu valdi verða einkenni þessarar. Keflavíkursamningurinn nýi sýnir þegar hvert stefnir: í stað þess að láta erlenda dáta fara, skal nú taka íslenskt vinnuafl frá því verki að þyggja fyrir íslendinga og láta íslendinga hinsvegar byggja yfir dátana á Vellinum, aðalverktökum íhalds og Fram- sóknar til dýrðar — og gróða. — Þegar svo alda erlendrar kreppu tekur að ríða yfir Island, þá er Ijóst hverjum verður látið blæða, — ef íslensk al- þýða er þá ekki reiðubúin til stórpólitískrar einingar inn á við — og harð- vítugrar baráttu við innlendar og erlendar yfirstéttir út á við. Stjórnarskiptin og samningatilraunirnar um vinstri stjórn eru teknar til með- ferðar í þessu hefti, sömuleiðis góð grein gerð fyrir því hve lífskjör alþýðu bötnuðu á tímum hinnar síðari vinstri stjórnar. Þetta var í þriðja sinn á þrjátíu árum að íslenskir sósíalistar voru í ríkisstjórn, en þess er aðeins minnst með þrem myndum að þessu sinni. — Þá er 25 afmæli kínversku byltingarinnar minnst — og jafnframt birtar nokkrar sögulegar myndir frá heimsókn íslenskra sósíalista og annara íslendinga til Kína í október 1956. Og fleira er í þessu hefti að finna, svo vonandi finnst lesendum það fjöl- breytilegra en það síðasta. * ★ * ,,Réttur‘‘ verður á þessum tímum ört vaxandi dýrtíðar að beina nokkrum alvöruorðum til margra áskrifenda sinna út um land. Árgjöld hafa greiðst illa frá vissum stöðum. Póstkröfur verið endursendar, stundum oftar en einu sinni. „Réttur" hefur þó ekki enn stöðvað sendingar þess vegna. En nú neyðist hann til þess, ef ekki verða gerð skil annaðhvort með greiðslu póst- kröfu eða í póstávísun. Áskriftargjaldi hefur verið haldið það lágt að ekki ætti að vera ofvaxið þeim, sem áhuga hafa, að greiða það. Hins vegar hafa bætst allmargir nýir áskrifendur. Athygli þeirra skal vakin á möguteikunum til að afla sér enn alls nýja „Réttar" (frá 1967). Það er enn hægt, en brátt eru viss hefti á þrotum, svo betra er að bregða við fljótt. „Réttur" hefur á renga aðrá að treysta en áskrifendur sína. Hann treystir þeim og til afla nýrra — sem flestra — sem fyrst. Nú þegar baráttan stendur um áð hrifsa þjóðina upp úr værðarmóki „vel- ferðar-ríkis“ og hernáms, sem sigið hefur á hluta hennar, þarf hver sósíal- isti og hernámsandstæðingur að vera daglega virkur við að breiða út þau blöð og tímarit, sem að því vinna að vekja þjóð vora til andspyrnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.