Réttur


Réttur - 01.07.1974, Blaðsíða 29

Réttur - 01.07.1974, Blaðsíða 29
bauð hann okkur inn að ræða málin yfir tebolla. Meðan við dreyptum á teinu lýsti Chiao fyrir okkur bakgrunni kommúnunnar. Mesti vandinn sem þessi kommúna átti við að etja var kostarýrt land og erfitt loftslag. Flóð og þurrkar skipmst sífellt á. Fimm ár sem falla alJar i Gulá renna um land kommúnunnar. Fy.'ir frelsunina (þ.e. valdatöku kommúnista. Þýð.) liirti enginn um að hlaða upp í flóð- garðana og ræsa fram áveituskurðina sem vildu einatt fyllast. Ekki þurfti nema lítils- háttar vatnavexti til þess að árnar flæddu yfir bakka. Næmi úrkoma átta þumlungum yfir vætutímann voru flóð vís. Afrakstur af landinu hafði undantekning- arlítið verið rýr. Það taldist gott ef u.þ.b. 6,9 skeppur korns fengust af ekru lands. (Velstæðari kommúnur sem ég heimsótti fengu allt að 114,6 skeppur á ekru. Til sam- anburðar fengust að meðaltali í Bandaríkj- unum árið 1959 21,3 skeppur hveitis á ekru). Sum árin hafði uppskeran brugðist gjörsam- lega. Til að mynda árið 1942 — sem bænd- um verður hugsað enn til með skelfingu — náði kornið ekki að þroskast, h.vorki liaust, vetur, sumar né næsta haust. Yfir tvö þúsund fjölskyldur flosnuðu þá upp og fóru á ver- gang. Þrjú hundruð tuttugu og sjö fjölskyldur urðu hungurmorða í þessu byggðarlagi. Tvö lumdruð börn voru seld af fjölskyldum sem var um megn að brauðfæða þau. Fólk lagði sér til munns uppþornaðar grasrætur og trjá- börk. Mestallt jarðnæði var leiguland. Kommún- istar komu á vettvang í október 1948, og svo til samtímis var liafist handa um skipt- ingu jarðeigna. Þetta hérað gekk í gegnum sömu þróunarstig og flestir aðrir hlutar Kína — fyrst komu samhjálparflokkar, þá sam- vinnufélög á frumstigi, þá samvinnufélög á „æðra stigi”, og nú alþýðukommúnur. Jafn- vel samvinnufélögin á æðra stigi höfðu ekki svarað, að dómi Chiaos, brýnustu þörfum landbúnaðarins.'1 Hvað geymslu vatns snerti til að mynda, eignuðu þeir sem bjuggu lengra upp með ánni sér ofmikinn hlut og eftirlém hinum sem neðar bjuggu ónógan skammt. Og á flóðatímum gátu vanhugsaðar aðgerðir þeirra í efri byggð orðið til þess að vatns- borðið laækkaði í neðra. Auk þess voru sam- vinnufélögin of lítil til þess að þau gætu vél- væðst myndarlega. Dráttarvélar voru fágæt- ar, og þar sem þær voru undir umsjá mið- stýrðra dráttarvélastöðva urðu samvinnufé- lögin að sækja fyrirfram um afnot af þeim. Yfir annatímann komu dráttavélarnar ýmist of seint eða of snemma. Þegar fregnir af sputnikkommúnunnF’ bárust um héraðið fóru bændur liér strax að ræða um það sín á milli livort ekki væri ráð af stofna eina af „þessum nýju kommúnum". Allir virtust því fylgjandi, fulltrúar voru sendir með umsókn á fund héraðstjórnar- innar. Héraðsstjórnin féllst á liana, og komm- únan var formlega stofnuð 17. ágúst 1958. Hið fyrsta sem þeir gerðu var að takast á við vatnsgeymsluvandann. Með haka og skóflur í liönd, og berandi tágakörfur, unnu þúsundar karla og kvenna að því, milli liaust- uppskerunnar og vorsáningar, að reisa fimm nýja vatnsgeyma með geymslurými fyrir um 2300 miljónir lítra, svo og að því að grafa áveituskurði þvert og endilangt. Chiao taldi að nú mundi allt að tólf þumlunga úrkoma ekki valda flóði, og þrátt fyrir meinlega þurrka undanfarin tvö ár hefur fengist þó nokkur uppskera. „Hversu mikill er afraksturinn hjá ykkur um þessar mundir", spurði ég. „Næsta lítill. Þurrkarnir sem geisa núna eru engu betri en 1942. Seinni liluta ársins sem leið var engin úrkoma að kalla, aðeins fáeinir dropar, og í ár (1960) liefur ekki 165
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.