Réttur


Réttur - 01.07.1974, Blaðsíða 13

Réttur - 01.07.1974, Blaðsíða 13
Enginn vafi er á því, að flokksstjórn Al- þýðuflokksins hafði ekki fengið að vita, þeg- ar hún gerði sína síðustu samþykkt í mál- inu, að þetta atriði yrði notað af Olafi Jó- hannessyni til að slíta viðræðunum. Gylfi vissi hins vegar mæta vel, að þessi endurtekna samþykkt um samráðin mundi leiða til viðræðuslita, — hann gekk því ekki að neinu gruflandi jxá að hann færi augljós- lega á baki við meirihlutann í sínum flokki. Þegar Olafur Jóhannesson lýsti því yfir, að þessi afstaða Alþýðuflokksins „réði úr- slitum" í má'inu, voru efnislegar umræður um þýðingarn.'Stu mál væntanlegs sam- komulags komnar mjög langt áleiðis. Við alþýðubandalagsmenn lýstum því yfir, að við teldum að allt benti til þess að hægt væri að ná endum saman, ef vilji væri fyrir hendi. Við höfðum bent framsóknarmönnum á, að enginn vandi væri að láta þau fara fram, Jæssi margumtöluðu samráð,. án verulegrar tafar, og þá hlyti svo að fara, að meirihlutinn í flokksstjóm Alþýðuflokksins léti til sín taka og gerði samkomulagið að veruleika. En allt kom fyrir ekki, Ólafur sat við sinn keip og þó var hann ekki eins eftirgefan- legur og síðan í samningunum við íhaldið. NIÐURSTAÐAN Sú niðurstaða sem ég dreg af þessum vinstri-stjórnarviðræðum er þessi: Framsóknarflokkurinn hafði nú gjörólíka afstöðu til myndunar vinstri stjórnar en hann hafði sumarið 1971, jægar hann vildi mjög gjarnan komast í slíka stjórn. Nú var öll framkoma flokksins mótuð af því, að hann gœti alveg eins myndað stjórn með Sjálf- stceðisflokknum og vinstri flokkunum. Nú hafði hann tvo möguleika opna allan tím- ann. Framsóknarflokkurinn var nú óbilgjarn í viðræðunum. Hann vék frá markaðri stefnu í herstöðvamálinu, neitaði að fylgja fram einarðri stefnu í landhelgismálinu og setti fram grófar kröfur um kjaraskerðingu hjá verkafólki. Hægri armur flokksins réð ferðinni að jsessu sinni og knúði Olaf Jóhannesson til íhaldssamrar afstöðu og síðar til be'tnnar undirgefni við Sjálfstceðisflokkinn. Sú tylliástæða sem notuð var til að slíta samningaviðræðunum gefur enga fullnægj- andi skýringu á því, að ekki var mynduð vinstri stjórn. Auðvitað var Gylfi undir áhrifum íhaldsins og vildi að jæssar viðræður strönduðu, en staða hans var vonlaus innan Alþýðuflokks- ins ef komið hafði til beinnar ákvörðunar þar um þátttöku í vinstri stjórn. Það vissi Olafur Jóhannesson fullvel, og hann gat því — ef hann hefði viljað og treyst sér til vegna hægriaflanna — knúið fram efnislega afstöðu Alþýðuflokksins í stað þess að hengja sig í ómerkileg formsatriði. Astæðan til Jæss að ekki var mynduð vinstri stjórn að þessu sinni var fyrst og fremst sú, að hcegri öflin i Framsóknar- flokknum réðu ferðinni og knúðu fram sam- starf við Sjálfstceðisflokkinn og það þó að það kostaði að Geir Hallgrímsson yrði for- sœtisráðherra. Olafur Jóhannesson þurfti ekki að hugsa sig lengi um, eftir að hann hætti stjórnarvið- ræðunum við vinstri flokkana. Samdægurs leitaði hann til Sjálfstæðisflokksins, og það hafa menn fyrir satt að það hafi tekið tvo daga að ná samkomulagi um öll helstu stefnuatriði. Þrefið í milli flokkanna sem upp kom var allt um verkaskiptingu og valdsvið einstakra ráðherra. Gylfi Þ. Gíslason sprengdi viðræðurn- ar að forminu til, en það „sem réð úr- slitum“ var hægri sveiflan í Framsókn. 149
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.