Réttur


Réttur - 01.07.1974, Qupperneq 22

Réttur - 01.07.1974, Qupperneq 22
Blekkingin banvæna — her v e r n d Hættulegasta blekkingin, sem nú er borin á borð fyrir Islendinga er sú að herstöðin á Keflavíkurflugvelli sé eitthvert öryggi fyrir Island. Það er þvert á móti: Ef til stórvelda- styrjaldar kæmi, þá er þjóðinni dauðinn vís vegna þessa hervallar. SEGULSKAUT ATOMSPRENGJA OG ELDFLAUGA Bandaríkin og Sovétríkin hafa nú hvert um sig sprengimagn til að steindrepa „mörg- um sinnum" hvert mannsbarn í löndum þeirra og bandamanna þeirra. Það sem held- ur þessum ríkjum frá að hefja heimsstríð, — og það fer nokkuð eftir heimsskoðun hvoru er trúað til slíks, — er að þau vita hvort um sig að heimsstríð er endalok beggja, máski alls mannkyns. Það er hægur vandi hernaðarlega séð fyrir Bandaríkin að taka Kúbu (en það kostar dýrt), eða Sovétríkin Vestur-Berlín, en þau vita hvort um sig að það þýðir gereyðingar- 158 heimsstríð. í þeirri vitneskju felst „öryggi" Vestur-Berlínar eða Kúbu, öðru ekki. Það dugar ekki að hugsa samkvæmt tíma- töflu eða tækni síðusm heimsstyrjaldar, ef menn hugsa í alvöru um þá, er kynni að koma. Urslitahryðja hennar gerist á fyrsm mínútum og klukkusmndum þess stríðs, þeg- ar eldflaugar atómsprengja falla á herstöðv- ar „óvinarins". Herstöð á Keflavíkurvelli dregur að sér slíkar sprengjur sem segull með þeirri gereyðingu, er þeim fylgja. Það er vafalaust lítill möguleiki fyrir nokk- urt mannsbarn að lifa af atomstyrjöld stór- veldanna. Helst væri hann þó sá fyrir Islend- inga að hafa hér enga herstöð og lýsa yfir því, að ef til stórveldastyrjaldar drægi, muni allir flugvellir hér á landi eyðilagðir þeir, er hernaðarnot mætti af hafa. Þeir stjórnmálamenn, sem láta hafa sig til að blekkja þjóðina með öryggistalinu, taka á sig þunga ábyrgð. En þeir vita um leið að þeir verða aldrei dregnir til ábyrgðar, ef til stórveldastyrjaldar kemur og á „öryggið" þeirra reynir, því þá yrði þjóðin að líkindum ekki lengur til. Það reynir því á menn og helst þjóðina alla að kunna að hugsa af viti og ábyrgðar- tilfinningu nú. NJÓSNAMIÐSTUÐ Eins og sakir standa er gildi herstöðvar bandaríska sjóhersins á Keflavíkurvelli fyrst og fremst það að vera njósnamiðstöð um ferðir kafbáta. Þeir, sem með fögur orð um „frelsi, lýðræði og öryggi Islendinga" á vör- unum, berjast fyrir framhaldi þessarar her- stöðvar, skulu því gera sér ljóst að þeir gerast þar með fyrst og fremst sjálfskipaðir fram- herjar bandarískrar njósnastarfsemi. En tækniþróun kann brátt að gera njósna- stöðvar á Islandi óþarfar fyrir Bandaríkjaher,

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.