Réttur - 01.07.1974, Síða 48
Pyndingar á Indíánum i Brasilíu 1967.
fær sérstaklega ríflega „hjálp”, 250 miljónir
dollara árlega, enda var yfir hálf miljón
kommúnista og þjóðfrelsissinna myrt þar
eftir valdarán hershöfðingja, sem Bandaríkin
lögðu blessun sína yfir, og 50000 pólitískir
fangar þjást þar í fangabúðum, svo lepp-
stjórnin vinnur vel fyrir mútunum. En hvorki
þetta né voðinn í Vietnam skal gert hér að
umtalsefni.
En hvað um þá, sem berjast fyrir lýðræði
og þjóðfrelsi í löndum Suður-Ameríku?
Hvernig breyta valdhafarnir, sem Bandaríkin
styðja, og CIA, leyniþjónusta Bandaríkjanna,
sem skipuleggur „nauðsynlegar aðgerðir" í
þágu Bandaríkjaauðvaldsins allt frá morðinu
á Allende, Chile-forseta, til beinna hernað-
araðgerða í Indó-Kína?
í júní 1969 voru foringjar hins sameinaða
kommúnistaflokks Haiti, — þeir Gérald
Brisson, Daniel Sansaricq, Gérard Wadest-
rand, Jacques Jeannot og fleiri myrtir.
I apríl 1972 voru átta kommúnistar myrt-
ir í Montevideo í Uruguay: Luis Mendiola,
José Ramon Abreu, Raul Gancio, Elman
Fernandez, Ricbardo Walter Gonzalez, José
Washington Sena, Ruben Lopez og Héctor
José Cervelli.
I desember 1972 fær heimurinn að vita
það að eftirfarandi leiðtogar verkalýðsflokks-
ins í Guatemala, sem er kommúnistískur,
hafi verið myrtir á hinn hryllilegasta hátt:
Bernardo Alvarado Monzón, aðalritari flokks-
ins, Mario Silva, Carlos René Vallé, Hugo
Barrio Clee, Carlos Alvarado Jerez, Miguel
Angel Hernandez, sem allir voru í miðstjórn-
inni, og starfsstúlka flokksins Fantina Rod-
riguez.
Margir helstu foringjar alþýðunnar í Suð-
ur-Ameríku, — þeir, sem ekki hafa verið
myrtir að undirlagi CIA, — sitja í dyflissum
valdhafanna:
Luis Corvalan, formaður Kommúnista-
flokks Chile, situr nú í fangabúðum herfor-
ingjastjórnarinnar og á líflát yfir höfði sér,
ef mótmælum alþýðu hvarvetna um heim
tekst ekki að frelsa hann.
Antonio Maidana, formaður Kommúnista-
flokks Paraguay, hefur nú setið 16 ár í
dýflissum Stroessnerstjórnarinnar og með
honum Alfredo Alcorta og Julio Rojas,
báðir úr miðstjórn þess flokks, og fleiri
ágætir baráttumenn. Þessir þrír höfðu verið
„dæmdir" í 10 ára fangelsi, en er síðan hald-
ið þar áfram.
Rodney Arismendi, aðalritari Kommun-
istaflokks Uruguay, situr í fangelsi Borda-
berry-stjórnarinnar, sem hafið hefur mikla
184