Réttur


Réttur - 01.07.1974, Page 50

Réttur - 01.07.1974, Page 50
á þessu fjárhagsári ætlaðir 7 Vl miljarður dollara til „aðstoðar erlendis! Af þeim 94 ríkisstjórnum, sem fá þessa „aðstoð", eru 57 einræðisstjórnir lögregluríkja, þar af 18 ríkisstjórnir, sem sjálft utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna nefnir hernaðareinræði. M.a. eru í þessum hópi Suður-Vietnam með 2,4 miljarða dollara, Kambodía með 551 rniljón, Chile með 85 miljónir, Brasilía með 70 miljónir, Suður-Kórea með 416 miljónir, Indonesía með 221 miljón, Taiwan með 80 miljónir dollara. (Þessar nýju upplýsingar eru frá Cranston, þingmanni öldungadeildar Bandaríkjaþings). Svo eru til menn á Islandi, sem telja sjálf- um sér og öðrum trú um að þessar amerísku herstöðvar um heim allan séu til varnar Bandaríkjunum og lýðræðinu, en ekki liður í framkvæmd heimsdrottnunardrauma. BANDARÍSKA LEYNIÞJÓNUSTAN OG GRÍSKA HERFORINGJASTJÓRNIN Nú þegar gríska einræðisstjórnin er falin, kemur sannleikurinn endanlega í ljós um bakhjall hennar. Kissinger hefur nú fyrir- skipað CIA, leyniþjónustunni, að hætta af- skiptum af grískri innanlandspólitík! Það, sem nú er opinberað, er eftirfarandi: CIA hefur haft afskipti af grískum inn- anlandsmálum í 25 ár. Fram á síðustu stund, voru erindrekar CIA í nánu sambandi við grísku ríkisstjórnina. Tala þeirra bandarísku erindreka, er höfðu þetta sem aðalstarf var um 60. Margir þeirra höfðu verið þar 15 ár og lengur. CIA hafði náið samband við Papadopoulos, sem framdi valdaránið 1967, og hann er talinn háfa þegið fé frá CIA alit frá árinu 1952. En fyrir tveim árum hæíti CIA fjárstuðningi við hann. CIA hafði náið samband við Joannidis, herlögreglustjórann, sem steypti Papadopoulos. Hét sá CIA-mað- ur, er hélt uppi sambandi við hann, Koromil- as. — Yfirmaður CIA-erindrekanna í Grikk- iar.di 1968—1972 var Mr. Potts og sá hann um sambandið við Papadopoulos. Hins vegar hefur embættismaður úr utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna nú ljóstað því upp að aðal- maður CIA í Grikklandi 1962—í8, Maury að nafni, hafi hjáipað Konstantin ko.umgi til cð kaupa þingmenn miðflokksins og fella þannig stjórn Papandreu. Oll svikin, brögðin og múturnar, — stjórn- araðferðir Bandaríkjanna, — fara nú óðum að korna í ljós. SUÐUR-AFRÍKA, ÍRAN OG OLI'UHRINGARNIR Suður-Afríka er sem kunnugt er eitt versta fasistaríki heims. Kúgun hvítu yfirstéttarinn- ar þar gagnvart yfirgnæfandi meirihluta þjóð- arinnar, blökkumönnum, er slík að eftir lang- varandi viðskiptabann á þetta ríki af hálfu Sameinuðu þjóðanna, þá hefur nú stjórn Suð- ur-Afríku verið útilokuð frá því að eiga full- trúa á fundum samtakanna. En viðskipta- bannið á Suður-Afríku hefur enn ekki hrifið til fullnustu vegna þess að voldug auðfélög, Bretlands og Bandaríkjanna fyrst og fremst, sem eiga mikilla hagsmuna að gæta í Suður- Afríku vegna stóreigna sinna þar, hindra framkvæmd þess. Sigrar sjálfstæðishreyfingarinnar í fyrri nýlendum Portúgals og þá fyrst og fremst Mosambík, hafa hinsvegar skapað Suður- Afríku — og ekki síst Rhodesíu, sem fas- istastjórnin styður, — nokkur vandræði. En þá koma voldugir aðilar auðvaldsins henni til hjálpar. Keisarinn í íran, sem beitir bláfátæka al- þýðu lands síns vægðarlausri kúgun, hefur grætt of fjár á hækkuðu olíuverði upp á síðkastið og hygst nú nota það fé til þess 186

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.