Réttur


Réttur - 01.04.1981, Side 4

Réttur - 01.04.1981, Side 4
Eftir að Magnús steig inn á vettvang al- þingis og ríkisstjórnar kom það vel fram hvernig unnt er að breyta pólitísku fjölda- fylgi eftir áratuga baráttu í athafnir sem lengi munu setja mark sitt á íslenskt samfé- lag. Sem stjórnmálamaður var Magnús Kjartansson maður fjöldastarfsins. Honum leiddist sérviskuleg einræða og honum gramdist þegar góður málstaður leið fyrir skort á hugkvæmni og skipulagshæfileikum. í forystusveit Sósíalistaflokksins voru vafa- laust oft skiptar skoðanir um pólitiskar áherslur. Út úr þeim umræðum spratt Al- þýðubandalagið eftir talsverð átök eins og kunnugt er. Þá reyndi mjög á Magnús Kjart- ansson; ég hygg að það hafi verið einhver erfiðasti þátturinn í pólitísku starfi hans, þ.e. timabilið fyrst um og eftir 1967. í al- þingiskosningunum þá um vorið bauð for- maður Alþýðubandalagsins fram lista í Reykjavík gegn G-listanum og fylgi G-listans varð minna en við áttum von á. Andstæðing- ar okkar gerðu sér vonir um það að takast mætti að einangra stjórnmálasamtök ís- lenskra sósíalista. Það mistókst. Ástæðurnar eru margar. í fyrsta lagi þrotlaust starf. í annan stað mikil nákvæmni við val á for- ystumönnum og i ákvörðunum um málflutn- ing frá degi til dags. Þá mæddi mikið á Magnúsi Kjartanssyni og nánustu samverka- mönnum hans. Þriðja ástæðan fyrir þvi að flokkurinn komst út úr einangrunartilraun- um andstæðinganna var sú að forystumenn flokksins lögðu allir megináherslu á fjölda- starf, samfylkingu fjöldans og hagsmuna hans andspænis árásum andstæðinganna bæði í verkalýðsmálum og þjóðfrelsismál- um. Magnús vitnaði oft til fjöldastarfs Sam- taka hernámsandstæðinga um og eftir 1960 til marks um það hversu langt unnt er að ná með skipulagshæfileikum, víðsýni og dugn- aði. Það var þess vegna ekki undarlegt að okkar mati sem þekktum til að Magnús skyldi beita sér fyrir fjöldahreyfingu fatlaðra þegar hann sjálfur skipaði sér i forystusveit samtaka þeirra hér á landi. Þá var boðað til fyrstu fjöldaaðgerða fatlaðra, haustið 1979. Þegar ég lít yfir feril Magnúsar Kjartansson- ar — það eru þau 15—20 ár sem ég þekki til — minnist ég áherslunnar á fjöldastarfið sem megineinkennis hans sem stjórnmálaleiðtoga. Þröngsýni og þrætubók voru eitur i hans beinum. Með penna sínum kveikti Magnús neista í brjósti fjöldans. Penni hans var svo skarpur að enginn starfandi blaðamaður komst ná- lægt honum. Þegar Magnús hóf störf á Þjóð- viljanum sem blaðamaður tóku lesendur fljótt eftir stíl hans, snörpum og afhjúpandi. Kristinn E. Andrésson var þá ritstjóri blaðs- ins, og það var verk Kristins að Magnús varð ritstjóri Þjóðviljans. Sú ákvörðun Kristins varð hreyfingu íslenskra sósíalista mikil gæfa eins og fleira sem hann kom nálægt á sinni tíð. Greinar Magnúsar urðu fljótt fleyg- ar; Argus hét hann lengi, síðan Austri. Þess- ar greinar voru oft það fyrsta — stundum eina! — sem ungir menn lásu í blaðinu á þeim árum. Þjóðviljinn var ómissandi blað í umræðu lesendanna upp til heiða og inn til dala, í brúarvinnu eða út til fjarða í síld. Austra- pistillinn var lesinn og lesinn aftur, stundum klipptur út og festur kirfilega á tjaldsúluna, hurðina á kaffiskúrnum eða á forstjóra- skrifstofuna! Það var ekki að undra þegar Magnús var settur í steininn um árið að verkamenn á höfninni söfnuðu le til að leysa hann út. Frá því greinir á mynd sem einhvers staðar er til í fórum Þjóðviljans. Magnús beitti sér á síðari árum ekkrsem verkstjóri á Þjóðviljanum; hann skrifaði sina leiðara og Austra-pistla reglulega. Hann 68

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.