Réttur - 01.04.1981, Page 38
Ásmundur Hilmarsson
Megnar verkalýðshreyfingin að
móta þróun örtölvubyltingarinnar?
Það hefur ekki farið framhjá neinum að
spáð er mikilli tæknibyltingu með tilkomu
tölvutækninnar. Margur telur sig geta
séð fyrir ótrúleg risaskref í framtíðinni með
örtölvutækninni. Tæknimenn hafa lýst ýms-
um möguleikum, sem opnast með hjálp þess-
ara tækni og félagsfræðingar hafa gjarnan
lýst hugsanlegum áhrifum og afleiðingum
hennar á þjóðfélagsmyndina. Skribentar af
ýmsum gerðum hafa síðan leyft sér að gera
úr þessu ýmsar ótrúlegar framtíðarspár, sem
eru nánast hreinar skáldsögur lausar frá öll-
um raunverulegum möguleikum. Mörgum
dreymnum tækniskribentum hætti til að
búa sínar Útópíur til út frá óbeisluðu hug-
myndaflugi sínu um möguleika tækninnar.
Eins og við könnumst við frá fyrri tæknibylt-
ingum, þá stenst þetta hugarflug ekki í köld-
um raunveruleikanum nema að sára litlu
leyti. Á,stæðan fyrir því að hugmyndirnar
standast illa reynsluna og raunveruleikann
er að mínu viti helst sú að spámennirnir
flaska á því að spurningar um notkun allrar
tækni eru af félagslegum- og pólitískum toga
spunnar en ekki tæknilegum. Við getum gert
okkur í hugarlund að gerð, skipulag og
markmið þjóðfélags ræður miklu um til
hvers tæknikunnátta er notuð á sama hátt og
byssan yrði öðruvísi notuð í samfélagi morð-
ingja en í samfélagi veiðimanna.
í umræðum og skrifum um tölvutækni
hefur lítið borið á þeim hugmyndum, sem
reifaðar hafa verið innan verkalýðshreyfing-
arinnar. Því verður varla á móti mælt, að í
okkar þjóðfélagi geta hugmyndir alþýðu-
samtaka eins og verkalýðshreyfingarinnar,
haft afgerandi áhrif í þróun tölvutækninnar í
atvinnulífinu.
Jákvæð afstaða verkalýðs-
hreyfingarinnar
Ég held að segja megi að verkalýðshreyf-
ingin hafi ævinlega brugðist jákvæð við allri
nýrri tækni sem slíkri. Engin sérstök ástæða
er til þess að ætla annað en svo verði einnig
gagnvart tölvutækninni. Þó verkalýðshreyf-
ingin hafi verið jákvæð þá táknar það ekki
að alit hafi verið kokgleypt athugasemda-
laust, sem fyrir hana hefur verið egnt.
Reyndar hefur oft komið í hennar hlut að
benda á neikvæðar hliðar, sem oft fylgja
hraðri tækniþróun og hagræðingu og berjast
síðan fyrir betrun og breytingum bæði fé-
lagslega og pólitískt. Allar götur frá upphafi
verkalýðshreyfingarinnar hefur þurft að
102