Réttur - 01.01.1983, Page 1
ffittnr
66. árgangur
1983 — 1. hefti
Fyrir dyrum standa örlagaríkustu kosningar sem háöar hafa verið á íslandi
síðan 1942 að fátækur, en samtaka og pólitískt þroskaður verkalýður vann
þá stórsigra undir forustu Sósíalistaflokksins að brjóta gerðardómslög íhalds
og Framsóknar á bak aftur með skæruhernaðinum og tvennum alþingiskosn-
ingum, sem Sósíalistaflokkurinn var eini sigurvegarinn í. í krafti þessara sigra
var gerbylt lífskjörum alþýðu, örbirgðin gamla afmáð og alþýðan skóp sér
það nútíma Island smásaman með æ víðfeðmari félagsmála- og tryggingalög-
gjöf, samhliða því sem hún varðist hatrömum árásum afturhaldsins á
kaupmátt launa hennar — nú í fjóra áratugi.
Nú hefur afturhaldið á Islandi boðað hvers alþýða má vænta, ef flokkar
stórkaupmannanna, verslunar- og hermangara — auðvalds Islands sigrar.
I fyrsta lagi ætlar þetta afturhald að afnema öll félagsleg réttindi alþýðu:
Gróðalögmálið á eitt að drottna, — allt frá strætisvögnum til sjúkrahúsa á að
bera sig, þ.e. græða, veikt fólk getur dáið drottni sínum, ef það getur ekki
lagt fram fé fyrir læknishjálp og sjúkrahúsvist, — eins og í Bandaríkjunum!
Hingað til hafa íslenskar konur í Bandaríkjunum flúið hingað heim til þess
að ala börn sín, af því þær höfðu ekki efni á slíku í Bandaríkjunum. — M.ö.
orðum: Mammon á að drottna alvaldur, — hver snefill samhjálpar og
bróðurkærleika skal upprættur úr íslensku samfélagi sem hættulegt
bolshevikkafyrirbrigði.
Hvert atkvæði greitt íhaldi og Framsókn verður aðstoð til að fremja þetta
ódæði, sem „helmingaskiptastjórn“ þeirra myndi fremja.
[ öðru lagi boðar afturhaldið að ríkisfyrirtæki skuli tekin af almenningi og
afhent „einstaklingum“, þ.e.a.s. þægum bröskurum með réttan pólitískan lit.
Það er kaliað „einstaklingsfrelsi" — og skulu þá ósvífnir kaupahéðnar fá að
féfletta almenning án verðlagseftirlits og harðskeyttir atvinnurekendur fá að
arðræna verkalýð í krafti 10% atvinnuleysis, þ.e.t.d. 7000 atvinnuleysingja á
íslandi, ef farið er eftir fyrirmyndunum: (Dokkahjúunum Reagan og Thatcher.
LANDSBCKASAFN
375165
IfilANOS