Réttur - 01.01.1983, Blaðsíða 41
Samkvæmt samningnum frá 1966 átti
hann að greiða framleiðslugjald miðað
við útflutt tonn af áli, en á siðari stigum
samninganna tókst auðhringnum að
breyta þessu gjaldi í raunverulegan tekju-
skatt með því að skerða átti framleiðslu-
gjaldið eftir afkomu auðhringsins!
Nú hefur tvennt komið í ljós við ræki-
lega afhjúpun Alþýðubandalagsins á
framferði auðhringssins á nær öllu rekst-
urstímabili Álfélagsins í Straumsvík:
1. Með fölsun á bókhaldi og yfirverði
á aðföngum til álversins lætur ísal líta
svo út sem félagið hafi verið rekið með
tapi allan tímann! Pannig breytist fram-
leiðslugjaldið í lágmarks-tekjuskatt!
Með þessum þokkalegu aðferðum hef-
ur þessum auðhring haldist uppi að
skammta sér sjálfur skattgreiðslur til
íslenska ríkisins. Þetta eru bein skatt-
svik og myndi vera refsað harölega, ef
íslendingur ætti í hlut.
Þekkt enskt endurskoðunarfirma,
Coopers & Lybrand, hefur reiknað út,
að skattsvikin frá 1974 til 1980 námu í
dollurum svipaðri upphæð og álverið
greiddi fyrir rafmagið. — Með öðrum
orðum: Alhringurinn fær raforkuna á
þessum árum án þess að greiða fyrir
hana!
Hvað hefði þetta framferði verið
kallað, ef danskir einokunarkaupmenn
hefðu fengið vörur bænda á svipaðan
hátt á 17. öld?
2. Á árinu 1975 voru álsamningarnir
endurskoðaðir, en þjóðin blekkt um
Raforku hækkun en skattalækkun Töluleg áhrif breytinga á skattaákvæðum og raforkuverði ísal (að teknu tilliti til endurskoðunar Coopers & Lybrand) árin 1975 - 1982.
Geflð og tekið 1. Skattar (framleiðslugjald) Skv. óbreyttum samningi 1966/69 Skv. breyttum samningi 1975 Mismunur Milj. USDMilj. ísl.kr. 43.3 831.4 16.6 318.7 + 26.7 512.7
2. Raforka Skv. óbreyttum samningi 1966/69 Skv. breyttum samningi 1975 Mismunur Milj. USDMilj. ísl.kr. 23.2 445.4 49.4 948.5 + 26.2 503.3
Heildarútkoma endurskoðunar 1975 Skattar (framleiðslugjald) Raforka Mismunur Milj. USDMilj. ísl.kr. 26.7 512.7 26.2 503.3 + 0.5 9.4
Ath. Upplýsingar um skatta (framleiðslugjald) eru fengnar frá Ríkisendurskoðun, en um raforkuverð frá Landsvirkjun.
41