Réttur - 01.01.1983, Qupperneq 53
— Gengið er útfrá launamannasjóði í
hverju léni Svíþjóðar eða um 24 sjóðir
samtals.
— Um stjórn sjóðanna eru tvær tillög-
ur. Önnur miðast við að í hverju léni sé
kosið fulltrúaráð. Kosningarétt hafa allir
sem geta sannað hlutdeild sína í lífeyris-
sjóði. Hin tillagan gerir ráð fyrir að
verkalýðsfélög tilnefni menn í stjórn sjóð-
anna auk landsþinga og sveitarfélaga.
Þess verður gætt ef þessi tillaga um kjör
til stjórna verður ofaná, að fulltrúar
verkalýðsfélaga verði í öruggum meiri-
hluta.
Hugmyndir VPK
Vensterpartiet kommunisterna í Sví-
þjóð höfðu einnig uppi hugmyndir um
launamannasjóði fyrir kosningarnar í
september. Peirra hugmyndir eru í nokkr-
um grundvallaratriðum ólíkar öllum öðr-
um hugmyndum um launamannasjóði.
Markmið flokksins er að koma á sósíal-
isma í Svíþjóð og þessvegna miða þeir
hugmyndir sínar við það grundvallaratriði
fyrst og fremst.
— í fyrsta lagi gerir flokkurinn ráð
fyrir þjóðnýtingu allra banka, fjárfest-
ingafyrirtækja og stærstu iðnfyrirtækja.
— í öðru lagi er gert ráð fyrir myndun
eins miðstýrðs landssjóðs og 24 lénssjóð-
um.
— Stjórn lénssjóðanna er kosin í al-
mennri kosningu en síðan kjósa fulltrúar
í stjórnum lénssjóðanna úr sínum hópi
stjórn landssjóðsins.
— Fjármagni til sjóðanna skal afla
með framleiðsluskatti, skatti á arð fyrir-
tækja og eignaskatti. Þeir vísa alfarið á
bug hugmyndum sósíaldemókratanna um
hækkað framlag til lífeyrissjóðanna þar
sem með því sé raunverulega verið að
draga af launum verkafólks.
— Hlutverkum milli léns- og lands-
sjóðs er þannig skipt, að landssjóðurinn
veitir fjármagni til fyrirtækja í samfélags-
legri eign, umfangsmikilla og þjóðfélags-
lega mikilvægra framkvæmda og verk-
efna, sem lénssjóðirnir geta ekki ráðið við
vegna stærðar þeirra. Lénssjóðirnir fylla
útí þann ramma sem landssjóðurinn
myndar. Þeir leggja fram fé innan lénsins
eingöngu og þá til samvinnufélaga, sam-
eignarfyrirtækja og fyrirtækja í opinberri
eigu. Ennfremur getur lénssjóður lagt
fram fé fyrir einstök verkalýðsfélög að
ráðstafa. Einkum ef fyrir liggur að erlend-
ir auðhringir séu að seilast til valda í
fyrirtækjum og ef stendur til að leggja
niður fyrirtæki í léninu.
— Alstaðar þar sem sjóðirnir leggja
fram fjármagn er það í eigu þeirra. Aldrei
í eigu starfsmannanna sjálfra eða verka-
lýðsfélaganna. Petta er gert til þess að
hagsmunir verkafólksins sem eigenda og
launamanna verði ekki að einu. Verkfalls-
réttur verður tryggður gagnvart eigendum
fjármagnsins hvort sem það eru sjóðirnir
eða aðrir aðilar.
Árið 1981 var reiknað með, að sam-
kvæmt tillögum Vensterpartiet kommun-
isterna, kæmu inn 5 milljarðar sænskra
króna. Af þeim skyldu 2 milljarðar renna
til landssjóðsins en 3 milljarðar til léns-
sjóðanna 24.
Niðurlag
Ég hef hér að framan lýst í aðalatriðum
þremur hugmyndum að launamannasjóð-
um. Raunar kallar Vensterpartiet
kommunisterna í Svíþjóð sínar hugmynd-
53